Þriðjungur kvenna í lögreglunni orðið fyrir kynferðislegri áreitni Hrund Þórsdóttir skrifar 16. október 2013 18:30
30,8% kvenna í lögreglunni telur sig hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni en 4,1% karla svara sömu spurningu játandi. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem Ríkislögreglustjóri lét gera í samstarfi við kynjafræðideild Háskóla Íslands. Katrín Salima Dögg Ólafsdóttir, jafnréttisfulltrúi lögreglunnar, segir niðurstöðurnar sláandi. Hvað í þessu samhengi veldur þér mestum áhyggjum? „Að þessi mál koma ekki upp á yfirborðið,“ segir Katrín. Samkvæmt skýrslunni er áreitnin sjaldnast aðeins eitt tilvik og nær allir, eða 93,1%, segja hana hafa átt sér stað í vinnunni. Aðeins ein lögreglukona sagðist á síðasta ári hafa formlega tilkynnt áreitni en ekki var brugðist við. Þá kvaðst ein hafa sagt frá áreitni af hálfu næsta yfirmanns síns en fékk þau svör að viðkomandi yrði brjálaður ef hann yrði sakaður um áreitni. Ekkert var aðhafst. „Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar þá virðist ekki ríkja traust og þar þurfum við að bregðast við. Öðruvísi getum við ekki tekið á vandanum,“ segir Katrín. Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, segir koma á óvart hversu umfangsmikill vandinn sé. „Og í kjölfarið vakna spurningar um hvernig við bregðumst við. Við höfum þegar ákveðið að fara þá leið að taka upp ákveðinn farveg þannig að þessi mál fari í samráðsvettvang eða einhvers konar ráð, helst utan lögreglunnar,“ segir hann. Gerendur innan lögreglunnar eru oftast karlkyns samstarfsmenn, eða í helmingi tilfella en einnig er algengt að karlkyns yfirmenn áreiti undirmenn sína, eða í 32% tilfella. Haraldur segir könnunina undir nafnleynd svo ekki sé vitað nákvæmlega hvaða einstalingar eigi í hlut. „En að mínu viti er aðalmálið að við lærum af þessari rannsókn,“ segir hann.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira