Nafnbirting vændiskaupenda eina fælingin sem dugar Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 17. október 2013 15:17
Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, segir eðlilegt að nöfn manna sem ákærðir eru fyrir vændiskaup séu birt. Það sé helsti fælingarmáttur lagaákvæðanna sem gera kaup á vændi ólögleg, mun sterkari fælingarmáttur en nokkurn tímann sektir eða fanglesi. „Það eru þó að mínu viti góð tíðindi að þessi lög séu notuð og virt af lögreglunni og ákæruvaldinu, eins og sést á þessum ákærum. Ekki síst í ljósi málsins sem kom upp um daginn þar sem stúlka var ákærð fyrir að „svíkja“ peninga af vændiskaupanda þegar hún uppfyllti ekki sínar skyldur.“ Álfheiður segist telja að það sé almenn sátt um það í samfélaginu að við viljum ekki hafa þessa starfsemi hér og fælingamáttur nafnbirtingar hjá sakborningum sé ómetanlegur. „Lögin ná ekki markmiði sínu, sem er að koma í veg fyrir vændi, nema menn séu nafngreindir. Það er það eina sem dugar,“ segir Álfheiður. Vísir greindi frá því í dag að mál gegn tíu kaupendum vændis séu á dagskrá Héraðsdóms Reykjaness á miðvikudaginn í næstu viku. Nöfn sakborninganna eru ekki birt á dagskránni, þar kemur aðeins fram að hvert kynferðisbrotið á fætur öðru á hendur einstaklingum sem allir eru kallaðir „A“ verði þingfest.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Sjá meira