Mátti vísa Vítisengli úr landi Stígur Helgason skrifar 17. október 2013 17:29 Íslenska ríkið var sýknað af miska- og skaðabótakröfu Vítisengils.
Hæstiréttur sýknaði íslenska ríkið í dag af miska- og skaðabótakröfu Jans Anfinns Wahl, meðlims í vélhjólasamtökunum Hells Angels í Noregi. Jan stefndi íslenska ríkinu fyrir þær sakir að hafa vísað honum úr landi samdægurs og hann kom, þann 5. febrúar 2010. Við komu hans til Keflavíkurflugvallar umræddan dag leituðu tollverðir í farangri hans og fannst þá vesti merkt Hells Angels auk bols og beltis merkt sömu samtökum. Var hann í kjölfarið handtekinn og yfirheyrður, þar sem hann hélt því fram að hann hefði komið til landsins til að heimsækja land og þjóð og heilsa upp á vini í vélhjólaklúbbnum Fáfni í þrjá daga. Taldi Jan að ákvörðun Útlendingastofnunar að vísa sér úr landi væri ólögmæt, en hún var byggð á hættumati frá ríkislögreglustjóra sem Jan taldi órökstutt og beinlínis rangt, hann hafi ekki fengið öll gögn sem matið hljóti að byggja á og ýmis lög hafi verið brotin við málsmeðferðina, þar á meðal íslenska stjórnarskráin, stjórnsýslulög og útlendingalög. Gerði hann kröfu um 2.903 norskra króna í skaðabætur, jafnvirði tæpra 60 þúsund íslenskra króna, þar sem hann varð fyrir kostnaði við brottvísunina. Fjárhæðin byggir á upphæð flugmiða Jans fram og til baka. Þá gerði hann kröfu um 1.000.000 króna miskabætur þar sem hann var vistaður í einangrun í fangageymslum lögreglu frá því hann kom til landsins þar til honum var vísað úr landi. Hæstiréttur leitaði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um túlkun ákveðinna ákvæða útlendingalaga. Í álitinu var talið að aðild einstaklings að vélhjólasamtökum sem hefðu tengsl við skipulagða glæpastarfsemi gæti talist háttsemi sem fæli í sér raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn við einhverja af grundvallarreglum samfélagsins. Taldi dómurinn að hættumat ríkislögreglustjóra hefði ekki verið haldið annmörkum og að málið hefði talist nægilega upplýst þegar ákveðið var að vísa Jan úr landi. Íslensk stjórnvöld hefðu skilgreint afstöðu sína til Hells Angels með skýrum hætti og gripið til brottvísunarinnar í því skyni að vinna gegn starfsemi samtakka þar sem hún var talin fela í sér ógn við allsherjarreglu og almannaöryggi.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Sjá meira