Teflt fyrir geðið Gunnar Valþórsson skrifar 18. október 2013 07:54 Helgi Ólafsson með verðlaun og medalíu. Eitt af mörgum afrekum Helga á sviði skáklistarinnar. Hrafn
Helgi Ólafsson stórmeistari sigraði á Alþjóða geðheilbrigðismótinu, sem haldið var áttunda árið í röð, á vegum Vinaskákfélagsins í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur. Keppendur voru alls 42, þar af fjórir stórmeistarar, áhugamenn af öllum stigum, og mörg efnilegustu börn og ungmenni landsins. Helgi hlaut 6,5 vinning af 7 mögulegum, en næstur kom landsliðsmaðurinn Hjörvar Steinn Grétarsson með 6 vinninga. Bronsið hreppti siðan Jóhann Hjartarson, stigahæsti skákmaður Íslands, en hann sigraði á sama móti í í fyrra. Guðlaug Þorsteinsdóttir, margfaldur Íslandsmeistari, varð efst kvenna með 4,5 vinning, sjónarmun á undan landsliðskonunum Elsu Maríu Kristínardóttur og Lenku Ptacnikova. Í flokki 17 ára og yngri hlutu þeir Oliver Aron Jóhannesson, Birkir Karl Sigurðsson og Gauti Páll Jónsson allir 4 vinninga, en Oliver var efstur á stigum. Í tilkynningu segir að kempan Bragi Halldórsson hafi fengið verðlaun fyrir bestan árangur 60 ára og eldri, en hann hlaut 5 vinninga og var hársbreidd frá því að komast á verðlaunapall í heildarkeppninni. Mótið þótti stórskemmtilegt og fór vel fram. Hrafn Jökulsson varaforseti Vinaskákfélagsins setti mótið og þakkaði góða samvinnu við TR. Þá bar hann viðstöddum kveðjur frá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra og skákvini, og Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga. Þá þakkaði Hrafn þeim hollvinum sem lögðu til veglega vinninga, en það voru Forlagið, Sögur útgáfa, Borgarleikhúsið, Þjóðleikhúsið og Saffran. "Skákstjóri á mótinu var Róbert Lagerman, forseti Vinaskákfélagsins, en svo góður andi ríkti á mótinu að aldrei þurfti að kalla dómarann til. Vinaskákfélagið og TR þakka bakhjörlum, keppendum og öðrum þátttakendum í bráðskemmtilegum viðburði, sem orðinn er einn af fastapunktunum í íslensku skáklífi," segir ennfremur í tilkynningu. Mótið var endapunktur geðheilbrigðisvikunnar á Íslandi 2013.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira