Vilhjálmur undrast orð fjármálaráðherra Hrund Þórsdóttir skrifar 19. október 2013 14:03 Bjarni Benediktsson og Vilhjálmur Birgisson. Mynd/Stefán
Ríkisstjórnin verður ekki langlíf ef ekki verður staðið við kosningaloforð um lausn á skuldavanda heimilanna, segir formaður Verkalýðsfélags Akraness. Hann undrast ummæli fjármálaráðherra síðustu daga um að ekkert muni liggja fyrir í málinu á þessu ári og segir þögn forsætisráðherra ærandi. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, hefur undanfarna daga sagt að ekkert muni liggja fyrir hvað varðar leiðréttingu á forsendubresti heimilanna fyrir áramótin. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, sem situr í sérfræðingahópi forsætisráðherra um afnám verðtryggingar segir þessar yfirlýsingar óheppilegar og að Bjarni tali málið niður. Bjarni hefur sagst vonast til að sérfræðingahópur um skuldavanda heimilanna skili tillögum fyrir árslok en Vilhjálmur segir hópinn eiga að skila þeim í síðasta lagi í lok næsta mánaðar. „Það liggur alveg fyrir hvert er aðal kosningaloforið þessarar ríkisstjórnar, það er að afnema hér verðtryggingu á neytendalánum og leiðrétta skuldir heimilanna,“ segir Vilhjálmur. „Ég er sannfærður um það að almenningur verði upplýstur hvernig að þessum málum verði staðið og hversu lengi við þurfum að bíða. Það liggur fyrir að ef menn standa ekki við kosningaloforðin þá lifir þessi ríkisstjórn ekki lengi.“ Vilhjálmur segir ennfremur undarlegt að fjármálaráðherra tjái sig ítrekað á þessum nótum þar sem málið sé á forræði og ábyrgð forsætisráðherra. Ummæli Bjarna valdi Framsóknarflokknum verulegum vandræðum enda séu þau á skjön við ummæli forsætisráðherra og loforð framsóknarmanna. „Forsætisráðherra hefur talað skýrt um þessi mál og því ekki mikill samhljómur á milli hans og fjármálaráðherra,“ segir Viljálmur.
Mest lesið Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Stúlkan er fundin Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Fleiri fréttir Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Sjá meira