Dansar argentínskan tangó á kvöldin Haraldur Guðmundsson skrifar 9. október 2013 10:05 Svana Helen Björnsdóttir, starfandi stjórnarformaður Stika og formaður Samtaka iðnaðarins. Mynd/aðsend.
Svana Helen Björnsdóttir, starfandi stjórnarformaður Stika, segir hefðbundinn dag í lífi hennar einkennast af fundarsetum, fyrirlestrahaldi og fjölbreyttri verkefnavinnu. Þess á milli dansar hún argentínskan tangó og siglir á seglskútu með fjölskyldunni. „Ég er í fullu starfi sem stjórnarformaður Stika og þessa dagana er ég að sinna rannsóknarverkefni í áhættugreiningu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og fleiri aðila,“ segir Svana. Ásamt því að vera í fullu starfi hjá Stika situr Svana í nokkrum stjórnum. Hún er meðal annars formaður Samtaka iðnaðarins, í framkvæmdastjórn og stjórn Samtaka atvinnulífsins og í stjórn Landsnets og Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. „Öll mín störf, í hverju sem þau felast, tengjast íslenskum iðnaði og atvinnulífi og eflingu þeirra með einhverjum hætti,“ segir Svana. Svana er rafmagnsverkfræðingur og hefur að auki lokið námi í alþjóðlegum markaðsfræðum og rekstrarverkfræði. Hún stofnaði ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtækið Stika árið 1992 en fyrirtækið sérhæfir sig í áhættustjórnun og upplýsingaöryggi. Hún er gift Sæmundi E. Þorsteinssyni, fjarskiptaverkfræðingi hjá Símanum, og þau eiga saman þrjá syni, Björn Orra, sem er nítján ára, og tvíburana Sigurð Finnboga og Þorstein, sem eru sautján ára. Spurð um áhugamál segir Svana að þau hjónin hafi í nokkur ár dansað argentínskan tangó og að hún stundi einnig þolfimi og jóga í hverri viku. „Síðan eigum við 34 feta seglskútu, Amíu, og við stefnum að því að eyða meiri tíma á henni. Faðir minn átti skútuna áður en ég tók við henni til að sameina fjölskylduna í útivist. Ég á þrjá dugnaðarstráka og þessi ákvörðun var tekin í samráði við þá,“ segir Svana. Svana eyðir einnig talsverðum hluta af frítíma sínum í málefni tengd Þjóðkirkjunni. Hún er kjörinn fulltrúi á Kirkjuþingi og er varamaður í kirkjuráði Þjóðkirkjunnar. „Við sem búum á Íslandi erum góðu vön, við búum við jafnrétti fólks og mikið frelsi á öllum sviðum. Þessi lífsgæði eru ekki sjálfsögð og það vill gleymast í umræðu hér að þetta eigum við kristnum lífsgildum að þakka. Ástæða fyrir því að ég hef áhuga á trúarlegum málum er einnig sú að ég tel að siðvit sé mjög mikilvægt í bland við hugvit og verkvit. Ég tel mikilvægt að menn starfi til góðs og störf manna séu til góðs.“
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira