Ferðamaðurinn talinn af Boði Logason skrifar 30. september 2013 13:10 Nathan Foley-Mendelssohn sást síðast í Landmannalaugum þann 10. september.
Nathan Foley-Mendelssohn, sem leitað hefur verið að um helgina, er talinn af, segir yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Hvolsvelli. Síðast er vitað um ferðir Bandaríkjamannsins 10. september í Landmannalaugum. Nathan er 34 ára gamall og var einn á ferð hér á landi. Hann hugðist ganga frá Landmannalaugum að Skógum á þremur dögum. Síðast er vitað um hann ásamt gönguhópi á þessum á slóðum. Fjölskylda hans hafði samband við yfirvöld hér á landi fyrir helgi, þegar ekki hafði heyrst í honum í tæplega tvær vikur. „Við fengum þær skýringar hjá fjölskyldunni að hann væri vanur að ferðast, og það gætu liði einhverjir dagar á milli þess sem hann lét heyra í sér. Þeim fannst eftir þennan tíma nokkuð langur tími hafa liðið og fóru að grennslast fyrir um hann, en voru ekki áhyggjufull fyrr en nú fyrir helgi,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli. Yfir 200 björgunarsveitarmenn leituðu á svæðinu á laugardag og í gær. „Það náðist að dekka gríðarlega stórt landsvæði, en niðurstöðurnar eru ekki eins góðar og vonir stóðu til - við höfum ekkert fundið ennþá. Og höfum ekki fundið neinar vísbendingar og stöndum í rauninni í sömu sporum og þegar leitin hófst á laugardaginn.“ Í gærkvöldi var tekin ákvörðun um að hætta leitinni. „Við vitum það alveg, og fræðin segja okkur það, að eftir þennan tíma, á þessu svæði og í þessu veðurfari þá erum við ekki í lífleit - við teljum hann af," segir hann. „Við munum svo sem ekki blása leitina formlega af strax, við erum enn að leita að vísbendingum og reyna að grafa upp eitthvað sem við getum unnið eftir. En á meðan við höfum ekkert frekar í höndunum teljum við ekki ástæðu til að leita meira því það er búið að dekka þetta svæði mjög vel.“ Vinir Nathans komu hingað til lands um helgina og aðstoðuðu við leitina. „Það komu nokkrir vinir hans fyrir hönd fjölskyldunnar. Þeir eru búnir að aðstoða okkur gríðarlega mikið, og vera okkur stoð og stytta í þessari upplýsingaöflun. Það var gott að fá þau til okkar að hjálpa til," segir hann.Þið teljið alveg víst að hann var á þessu svæði, hann hefur ekki getað farið eitthvað annað? „Nei, miðað við ferðaplanið hans og það sem vinir hans segja okkur, þá heldur hann sínum áætlunum. Ferðaplanið hans var að fara frá Landmannalaugum að Skógum á þremur dögum, sem er frekar knappur tími. Hann skráir sig í gönguna þarna 10. september og talar við franskan hóp sem er að fara þarna sama tíma, og þar útskýrir hann planið sitt frekar,“ segir hann.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Sjá meira