Enski boltinn

Bolt fer á taugum er hann horfir á Man. Utd

Bolt með Robin van Persie, leikmanni Man. Utd.
Bolt með Robin van Persie, leikmanni Man. Utd.
Ást fljótasta manns heims, Usain Bolt, á Man. Utd hefur ekki farið fram hjá neinum og blaðamenn hafa afar gaman að því að ræða við Bolt um Man. Utd.

Bolt viðurkennir að lifa sig inn í boltann af lífi og sál.

"Ég verð stressaður þegar ég horfi á fótbolta. Sérstaklega þegar Man. Utd er ekki að spila vel. Man. Utd tekur mig á taugum í hverjum í einasta leik. Þetta getur verið erfitt fyrir mig," sagði Bolt.

"Sir Alex Ferguson var náttúrulega snillingur. Stundum gerði hann eitthvað sem enginn skildi en það gekk samt upp. Ég geri mér grein fyrir því að það mun taka David Moyes smá tíma að ná fótfestu í nýju starfi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×