Litháar í úrslitaleikinn í fyrsta sinn í tíu ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2013 17:31 Jonas Kazlauskas þjálfar landslið Litháa. Mynd/AFP
Litháen er komið í úrslitaleikinn á Evrópumóti karla í körfubolta sem fram fer í Slóveníu eftir 15 stiga sigur á Króatíu í kvöld, 77-62, í fyrri undanúrslitaleik keppninnar. Litháen mætir annaðhvort Frakklandi eða Evrópumeisturum Spánar í úrslitaleiknum á sunnudaginn en þau mætast seinna í kvöld. Frábær þriðji leikhluti gerði út um leikinn en Litháen vann hann 21-8. Þetta er fimmta sinn sem Litháar komast í úrslitaleikinn á EM en jafnframt í fyrsta sinn síðan 2003 þegar þeir urðu Evrópumeistarar í Svíþjóð. Jonas Maciulis (Panathinaikos í Grikklandi), skoraði 23 stig fyrir Litháen og Linas Kleiza (Fenerbahce í Tyrkklandi) var með 22 stig og 11 fráköst. Leikstjórnandinn Mantas Kalnietis (Lokomotiv Kuban í Rússlandi) var síðan með 18 stig. Bojan Bogdanovic skoraði mest fyrir Krótaíu eða 15 stig Linas Kleiza skoraði 17 stig á fyrstu ellefu mínútum leiksins og hjálpaði litháenska landsliðinu að ná níu stiga forskoti, 29-20. Króatar unnu sig inn í leikinn í öðrum leikhlutanum og í hálfleik munaði aðeins þremur stigum, 40-37. Litháar gerðu síðan út um leikinn í þriðja leikhlutanum þar sem 18-3 sprettur kom þeim átján stigum yfir þegar sjö mínútur voru liðnar af leikhlutanum. Litháar voru sextán stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 61-45, og lönduðu þar sannfærandi og öruggum sigri. Úkraínumenn tryggðu sér sæti í leiknum um fimmta sætið fyrr í dag með því að vinna Ítala 66-58. Með þessum sigri tryggði úkraínska landsliðið sér einnig þátttökurétt á HM í fyrsta sinn í sögu landsins. Eugene Jeter skoraði 20 stig fyrir Úkraínu en Pietro Aradori var með 15 stig fyrir Ítala. Úkraínumenn mæta Slóveníu í leiknum um fimmta sætið en Slóvenar tryggðu sér sæti í leiknum með öruggum 92-74 sigri aá Serbíu í gær. Ítalir og Serbar spila hinsvegar um 7. sætið.
Körfubolti Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Sport Dagskráin í dag: KA fer í Hafnarfjörðinn og golfið heldur áfram Sport Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Mæssi slær enn annað metið Sport Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Sport Hákon skoraði tvö í vináttuleik Sport Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira