Innlent

Ósáttur við að vera handtekinn tvisvar fyrir fíkniefnaakstur

Kristján Hjálmarsson skrifar
Sýnatökur á lögreglustöð leiddu í ljós að bæði höfðu þau neytt kannabisefna.
Sýnatökur á lögreglustöð leiddu í ljós að bæði höfðu þau neytt kannabisefna.
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni tvo ökumenn vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna.

Um var að ræða tvítuga konu og rúmlega tvítugan karlmann. Sýnatökur á lögreglustöð leiddu í ljós að bæði höfðu þau neytt kannabisefna, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.

Karlmaðurinn brást mjög illa við afskiptum lögreglu. Ástæðan var sú, að hann hafði verið handtekinn fáeinum dögum áður, einnig fyrir fíkniefnaakstur, og taldi að ekki mætti stöðva sig aftur fyrir sama brotið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×