Innlent

Álver á Bakka: „Erum spenntir fyrir þessum möguleika“

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Jón Helgi Björnsson, formaður bæjarráðs í Norðurþingi, segir menn vera jákvæða gagnvart byggingu álvers á Bakka.
Jón Helgi Björnsson, formaður bæjarráðs í Norðurþingi, segir menn vera jákvæða gagnvart byggingu álvers á Bakka.
Félagið Klappir Development hefur áhuga á að byggja og reka 120 þúsund tonna álver í landi Bakka við Húsavík.

Fulltrúar Klappa hafa unnið að undirbúningi að uppsetningu og rekstri á álveri um tveggja ára skeið, og starfað með ráðgjöfum innanlands og erlendis á þessu sviði.

Álver á Bakka hefur verið til skoðunar og til umræðu undanfarin ár og til dæmis hafði Alcoa hug á að reisa álver á svæðinu ásamt fleiri fyrirækjum.

Jón Helgi Björnsson, formaður bæjarráðs í Norðurþingi, segir að bygging álvers hafi alltaf staðið til.

„Það hefur alltaf verið áhugi hjá álfyrirtækjum að reisa álver á Bakka og við erum mjög spenntir fyrir þessum möguleika. Við vorum alltaf með áætlanir um að menn myndu byggja 250 þúsund tonna álver á Bakka. PCC verkefnið og þetta verkefni eru af svipaðri stærðargráðu og það passar algjörlega inn í okkar áætlanir,“ segir Jón Helgi.

Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með umsóknina og þann áhuga sem félagið hefur sýnt iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík.

„Það sem er áhugavert þarna er að menn ætla í fullframleiðslu á álinu,“ segir Jón Helgi.

Í bókun bæjarráðs lýsir sveitafélagið sig reiðubúið til að taka upp viðræður um lóðarúthlutun um leið og fyrir liggur samstarfsyfirlýsing við orkusöluaðila um orkuafhendingu, sem er forsenda þess að verkefnið verði að veruleika.

Gert er ráð fyrir að verkefnið muni skapa 280 heilsársstörf í álverinu auk fjölda afleiddra starfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×