Innlent

Kristján Þór: Björn öflugur og góður stjórnandi á erfiðum tímum

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Björn Zoëga og Kristján Þór Júlíusson.
Björn Zoëga og Kristján Þór Júlíusson. Mynd/Pjetur
Kristján Þór Júlíusson heilbriðisráðherra hefur fallist á ósk Björns Zoëga um að láta af störfum sem forstjóri Landspítalans. Björn tilkynnti heilbrigðisráðherra um uppsögn sína í dag eftir að hafa gengt embætti forstjóra frá því í september 2009.

Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir Kristján Þór að Björn hafi verið öflugur og góður stjórnandi á erfiðum tímum. „Hann hefur sýnt mikla fagmennsku í störfum sínum, borið hag sjúkrahússins og hagsmuni sjúklinga fyrir brjósti og jafnframt tekist að halda rekstrinum í góðu horfi þrátt fyrir þröngan fjárhag. Ég færi honum bestu þakkir fyrir og óska honum velfernaðar á nýjum vettvangi.“

Skipaður verður starfandi forstjóri þar til ráðið verður í embættið að undangenginni auglýsingu og hefðbundnu ráðningarferli samkæmt lögum um heilbrigðisþjónustu. Starfslokadagur Björns hefur ekki verið ákveðinn en hann mun verða starfandi forstjóra til aðstoðar á næstu vikum eftir þörfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×