Innlent

Gunnar orðinn hress eftir hjartaþræðingu: „Andstæðingar mínir í pólitík mega fara að vara sig“

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Gunnar segist vera orðinn miklu verri viðureignar en nokkurn tímann fyrr.
Gunnar segist vera orðinn miklu verri viðureignar en nokkurn tímann fyrr. mynd/stefán
Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs, er kominn á fætur eftir að hann gekkst undir aðgerð á Landspítalanum. Hann segist vera orðinn eldhress en hann fékk hjartavírus síðasta vor.

„Í gegnum tíðina hef ég haft þetta vandamál með háþrýstinginn sem tengist genetískri arfleið minni og holdarfari en ég hef tekið ábyrgð á því að undanförnu svo það hefur ekki háð mér,“ segir Gunnar í samtali við Kópavogsfréttir. „Í vor gerist það að ég fæ flensu sem verður það svakaleg að ég fæ lungnabólgu upp úr henni.“

Síðar kom í ljós að mikið vatn hafði safnast fyrir í lungum Gunnars og í kjölfarið fór hann í hjartaþræðingu.

„Ef læknavísindin væru ekki eins og þau eru orðin í dag þá væri ég sjálfsagt steindauður,“ segir Gunnar en í hann var settur svokallaður bjargráður. Gunnar segist vera orðinn miklu hressari. „Hjartað í mér slær eins og Rolls Royce Turbo. Andstæðingar mínir í pólitík mega fara að vara sig því ég er orðinn miklu verri viðureignar en nokkurn tímann fyrr.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×