Innlent

Bjórmessa í Laugardalnum

Bjór- og skemmtanaþyrstir ættu að leggja leið sína í Laugardal um helgina því Októberfest verður haldið þar í fyrsta skipti í sögunni. Þá verður bjórmessa á laugardagskvöld í tjaldinu sem er komið upp.

Jón Kaldal, einn skipuleggjenda, lofar miklu stuði en boðið verður upp á nokkrar mismunandi tegundir af öli, bæði í flösku og krana.

Meðal þess sem verður á dagskrá er fræðsluleikritið Bjórsaga með Víkingi Kristjánssyni leikara, en það verður í kvöld. Þá mun fullorðinssirkusinn Skinnsemi koma fram og menn geta tekið þátt í pub-quiz með Hjörvari Hafliðasyni knattspyrnusérfræðingi.

Sjá nánar í myndskeiði með fréttinni. Hægt er að nálgast miða á staðnum og á midi.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×