Innlent

Leitað að amerískum pilti

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Nathan Foley-Mendelssohn var líklega klæddur í sama jakkka og á meðfylgjandi mynd, í svörtum buxum og með bláan bakpoka.
Nathan Foley-Mendelssohn var líklega klæddur í sama jakkka og á meðfylgjandi mynd, í svörtum buxum og með bláan bakpoka.
Lögreglan á Hvolsvelli hefur hafið eftirgrennslan að amerískum pilti, að nafni Nathan Foley-Mendelssohn, sem ætlaði að ganga Laugaveginn frá Landmannalaugum og Fimmvörðuháls að Skógum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Pilturinn lagði af stað frá Landmannalaugum þann 10. september og var líklega klæddur í sama jakkka og á meðfylgjandi mynd, í svörtum buxum og með bláan bakpoka.

Vitað er af honum á Húsavík, Ísafirði og svo í Landmannalaugum frá mánaðarmótum og fram til 10. september, en eftir það hefur ekkert heyrst frá honum.

Þeir sem einhverjar upplýsingar hafi um þennan pilt láti lögregluna á Hvolsvelli vita í síma 488-4110 eða í tölvupósti á netfangið hvolsvöllur@logreglan.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×