SönderjyskE tapaði sínum fyrsta leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. september 2013 19:39 Stella Sigurðardóttir. Mynd/Stefán
Íslendingaliðið SönderjyskE tapaði með sjö marka mun á móti sterku liði Midtjylland, 21-28, í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta kvenna í kvöld en þetta var fyrsti deildarleikur Karenar Knútsdóttur, Stellu Sigurðardóttur og Ramune Pekarskyt með danska liðinu. Rut Jónsdóttir og félagar í Team Tvis Holstebro unnu á sama tíma 28-25 útisigur á Nykøbing Falster HK. Midtjylland-liðið var bara tveimur mörkum yfir í hálfleik, 12-10, eftir að hafa komist í 5-0 í upphafi leiksins en SönderjyskE gerði vel í að koma sér aftur inn í leikinn á móti sterku liði á útivelli. Midtjylland var hinsvegar sterkara liðið í seinni hálfleik og tryggði sér góðan sigur en 1500 manns mættu á leikinn. Stelpurnar hans Ágústar Jóhannssonar fengu þarna mikla eldskírn á útivelli á móti sterkasta liði Danmerkur en það verður vissulega fróðlegt að fylgjast með Ágústi og stelpunum hans í framhaldinu en í kvöld spilaði liðið án tveggja lykilmanna sem meiddust í vikunni. Stella Sigurðardóttir skoraði fimm mörk í kvöld, Ramune Pekarskyte skoraði tvö mörk og Karen Knútsdóttir var með eitt mark. Team Tvis Holstebro var á sama tíma ekki í miklum vandræðum með lið Nykøbing Falster HK enda komið í 17-10 í hálfleik. Nykøbing Falster HK náði að laga stöðuna í seinni hálfleik en sigurinn var aldrei í hættu. Rut Jónsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir lið Team Tvis Holstebro í leiknum.
Handbolti Mest lesið Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Álftanes - Tindastóll 78-137 | Ótrúleg sýning gestanna Körfubolti Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Íslenski boltinn Kærasta Haaland hefur fengið nóg Enski boltinn Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Íslenski boltinn Ólympíumeistari í bráðaaðgerð á hálsi Sport ÓL í hættu: Hólmfríður Dóra brotnaði á æfingu Sport Sjáðu mark Kristins frá miðju og hin sem skiluðu sextíu milljónum í kassann Fótbolti Freyr ekki hrifinn af „hrokafullum dómara“ Fótbolti Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ Enski boltinn Fleiri fréttir Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Toppkonur Íslands á HM í handbolta 2025 Kom færandi hendi eftir að hafa skotið ljósmyndarann niður Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Átta liða úrslitin á HM klár Ótrúlegir yfirburðir Noregs og Danir enduðu líka á toppnum Ýmir lenti í íslensku hakkavélinni og enn bíður Blær Skýrsla Ágústs: Ekki lengur reynslulausar „Þessi hópur getur orðið mjög góður en hann þarf tíma til að læra“ Sjá meira