Lögregla tók skýrslur af starfsfólki VIP Club 20. júlí 2013 12:25 Vilhjálmur H. Vilhjálmsson er lögmaður eigenda VIP Club. samsett mynd „
Ég get staðfest að lögregla kom í heimsókn á VIP Club í nótt og tók myndir á staðnum og tók skýrslur af starfsfólki,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður eigenda VIP Club. Hann segir engin merki hafa fundist um meint vændi eða mansal í tengslum við staðinn. Staðurinn er svokallaður kampavínsklúbbur, og hefur ásamt Crystal í Ármúla verið til umfjöllunar undanfarna daga, en inni á stöðunum geta viðskiptavinir keypt kampavín og spjallað við stúlkur sem þar starfa. „Það var allt í samræmi við lög og reglur þannig að nú treysti ég því að Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi, dragi hin stóryrtu ummæli sín til baka og biðji umbjóðendur mína afsökunar.“ Vilhjálmur vísar þarna í orð sem Björk lét falla í fjölmiðlum um að svo virtist sem vændi og mansal væri stundað í tengslum við starfsemi umræddra staða. Eigendur þeirra stefndu Björk fyrir meiðyrði vegna þessara ummæla í gær og sams konar stefnu fékk Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, forstöðukona vændisathvarfsins, vegna ummæla á svipuðum nótum. Í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöldi kvaðst Björk standa við ummæli sín. „Þeir tóku skýrslur af starfsfólki, meðal annars þeim íslensku stúlkum sem þarna starfa og þeim ensku líka, þannig að þau ummæli borgarfulltrúans sem jaðra nú við kynþáttafordóma að mínu mati að starfsstúkurnar þarna tali eingöngu austur evrópsk mál, þau ummæli falla algjörlega um sjálf sig,“ segir Vilhjálmur.
Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira