KR-hundurinn er pínulítill Chihuahua-rakki sem heitir Hjútli Jakob Bjarnar skrifar 25. júní 2013 11:23 Rithöfundurinn Ágúst Borgþór segir að Hjútli sé vissulega ekkert KR-ljón en það verði að vera krúttheit í þessum kúltúr. "
Já þetta er hundur eða á fagmáli; rakki. Hann er fjögurra ára síðan í janúar, fæddur undir Lukku-Stjörnu í Garðabænum og er þar af leiðandi með blátt blóð í æðum. Hann kom til mín í vesturbæinn 1. maí 2009 og kom fljótlega í ljós að hann er lukkudýr því þegar ég labbaði með hann KR-hringinn þá skoruðu KR-ingar," segir Hulda Krístín Jóhannesdóttir eigandi lukkudýrs KR-inga.Krúttheit í bulluskapnum Lukkudýr KR-inga er lítill Chihuahua-hundur sem heitir Hjútli og er Rambóson. Myndir af honum og eldheitum KR-ingum eru farnar að birtast hér og þar, meðal annars af Hjútla og Ágústi Borgþór Sverrissyni rithöfundi en hann er eldheitur KR-ingur. Aðspurður hvort hann hefði ekki frekar viljað sjá vígalegri hund en Chihuahua sem sjálfan KR-hundinn segist hann ekki hafa velt því fyrir sér. "Þetta er bara einn af þessum skemmtilegu og ófyrirsjáanlegu hlutum sem verða til í þessum kúltúr. Verða ekki að vera krúttheit í þessu líka?"Tvö og hálft kíló af hreinni lukku Ágúst Borgþór segir Hjútla vissulega písl og hann hafi fengið hálfgerðan móral þegar hann var að öskra einhverja vitleysu við aðra myndatöku, fólk hafi haft áhyggjur af hlustum hundsins. "Ég er alveg eins og bavíani á vellinum oft." Hulda Kristín hefur ekki svo miklar áhyggjur af þessu. Honum sé ekkert vel við lætin en honum finnist rosalega gaman á leikjum, þá fær hann nammi reglulega og allt er gott. Þegar Hulda Kristín fer með hann á leiki er hann klæddur sérstaklega upp, í KR-peysu. "Hann er mjög ánægður að vera í peysunni og svo á hann KR-tösku sem hann bókstaflega elskar, sefur í henni heilu dagana." Hjútli er elskaður af öllum KR-ingum enda er hann að sögn eigandans algjör lukkuhundur. "Tvö og hálft kíló af hreinni lukku."Hvernig Hjútli varð opinber lukkuhundur Og Hulda segir söguna af því hvernig það er til komið að Hjútli varð opinber lukkuhundur KR-inga: "Þegar Rúnar Kristinsson var nýtekinn við KR sem þjálfari árið 2010, og allt var í volli hjá KR þá hittum við Rúnar þar sem hann var að leita af bolta sem hafði farið inn í limgerði á Meistaravöllunum. Við fórum til Rúnars og óskuðum honum til hamingju með nýja starfið og jafnframt sagði ég honum að alltaf þegar við færum á völlinn þá skoruðu KR-ingar. Þá horfir Rúnar á Hjútla og segir: Svo þetta er lukkutröllið. Og það er ekki að spyrja af því að Hjútli fann boltann sem kostaði víst 11.000 krónur og við kvöddumst. Rúnar sagði okkur að koma sem oftast á leiki. Og viti menn, næsta ár varð KR Íslands- og bikarmeistari.
Mest lesið Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Lífið Munnvatnið skiptir öllu máli Lífið Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Lífið Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Lífið Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Lífið Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Lífið Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Lífið samstarf Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri Menning Heitur Teitur selur Lífið Iðnaðarmaður ársins hlustar á IceGuys til að koma sér í stuð Lífið samstarf Fleiri fréttir Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Munnvatnið skiptir öllu máli Kærleiksherferð til heiðurs Bryndísi Klöru og betra samfélagi Heitur Teitur selur Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Hundrað ára afmæli bílsins í uppnámi eftir brunann Króli og Birta eiga von á barni Glæsihöll Haraldar við Elliðavatn Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Sabrina Carpenter gagnrýnd fyrir að ýta undir hlutgervingu kvenna Bjössi í Mínus er ný rödd Sýnar Hreinar húðvörur sem þú vildir óska að þú hefðir kynnst fyrr Fær ýmist þumalinn eða löngutöng vegna einkanúmersins Gríman og glens í Borgarleikhúsinu Vinsælasta TikTok-stjarna heims handtekin og yfirgefur Bandaríkin Ævintýralega flóknar útskýringar á framtaksleysi og leti Pharoahe Monch með De La Soul á Lóu Skvísaðu þig upp fyrir íslenska sumarið Villi á Benzanum slapp með skrekkinn Átta ára meðgöngu loksins að ljúka Forsetabörnin loksins komin heim Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Stjörnulífið: Sjóðheit og löng helgi Sly Stone er látinn Enn fjölgar í Hraðfréttafjölskyldunni Máli Baldoni vísað frá Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Sjá meira