Jóga setur aðeins meira líf í náttúruna Hanna Ólafsdóttir skrifar 27. júní 2013 08:00 Fólk á vegum Healing Nature setur sig í jógastellingar í Þórsmörk. Ingrid Karlsen „
Að stunda jóga úti í náttúrunni er yndislegt. Grasið verður grænna, himinninn blárri, það er eins og það komi aðeins meira líf í allt, “segir Emil Tsakalis, annar aðstandenda Healing Nature sem bjóða upp á jógagönguferðir og nudd í mongólsku hringtjaldi í Þórsmörk í sumar. Emil og félagi hans, Magnús Andri Pálsson, eru báðir jógakennarar og nuddarar og hafa komið upp aðstöðu í Þórsmörk í samstarfi við Volcano Huts. Þar hefur fólk val um að gista í eigin tjaldi eða leigja kofa. „Við erum með margs konar dagskrá en allt miðast við að fá kraftinn beint úr náttúrunni. Við leggjum mikið upp úr jógagönguferðum og þá byrjum við að taka smá power-jóga áður en við leggjum af stað til þess að undirbúa líkamann fyrir það sem er í vændum. Svo stoppum við nokkrum sinnum á leiðinni og tökum æfingar. Þá leggjum við sérstaka áherslu á vöðva og líkamsparta sem við erum að nota í göngunni.“ Tjaldið sem þeir félagar nota er eftir mongólskri fyrirmynd og segir Emil það henta íslensku veðurfari mjög vel. „Það er ekkert yndislegra en að fara í nudd í heitu tjaldinu og hlusta á fuglasönginn sem hljómar fyrir utan og vindinn ef svo ber við.“ Að sögn Emils hefur fyrirtækið farið vel af stað og Íslendingar jafnt sem erlendir ferðamenn notið þjónustunnar. „Við erum tveir í þessu núna en það kemur til greina að fjölga kennurum og nuddurum þegar líður á sumarið ef vel gengur. Við finnum fyrir miklum áhuga en fólk þarf ekki að vera vant jógaiðkun til að koma til okkar.“ Stefnan er að bjóða upp á jóga og nudd á fimmtudögum til sunnudags fram í miðjan september. Hægt er að panta tíma á síðunni volcanohuts.com.
Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Fleiri fréttir Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Sjá meira