Tóku 500 stunda réttindin í jóga á Indlandi Marín Manda skrifar 28. júní 2013 12:30 Ásdís María Elfarsdóttir og Baldur Jóhannesson. "
Ég hafði lesið bók sem unglingur um andlegt ferðalag konu og líf hennar og störf í Indlandi og ég varð djúpt snortin af hugmyndinni um uppljómun, jóga og þjónustu við aðra," segir Ásdís María Elfardóttir mannfræðingur. Ásdís ferðaðist til Indlands með kærastanum Baldri Jóhannessyni. Þar upplifðu þau drauminn og lærðu jóga og hugleiðslu. Ásdís segist hafa ákveðið að einn daginn skyldi hún upplifa Indland og sjálfboðastarf. Þetta var löngu fyrir ofurvinsældir Eat, Pray, Love eftir Elizabeth Gilberts. Þegar hún kynntist manninum sínum, Baldri Jóhannessyni, var hún ekki lengi að sannfæra hann um að fara með sér á vitund ævintýra sem smituðu hann af varanlegri ferðalagaþrá. Ásdís María Elfarsdóttir og Baldur Jóhannesson höfðu lagt pening til hliðar í mörg ár og var hugmyndin sú að þau gætu verið í bakpokaferðalagi í heilt ár. Lífið í Kópavoginum var sett á bið, húsgögnin voru seld og þau tilkynntu vinum og ættingjum að þau hefðu enga hugmynd um lokadagsetningu ferðalagsins. Flugmiðar aðra leiðina voru keyptir og svo var lagt af stað í ferðalag um nánast ólýsanlegt Indland. "Á Indlandi finnur maður bæði ríkasta og fátækasta fólkið og oftar en ekki býr það hlið við hlið. Maður kynnist ansi ólíkum viðhorfum til náungans en tíðkast á Vesturlöndum. Myndin Slumdog Millionaire var að sumu leyti raunsönn en að sumu leyti mjúk útgáfa því þar var alltof lítið af fólki í senunum," segir Baldur. Parið segir betl vera eitthvað sem ekki sé hægt að horfa fram hjá þrátt fyrir að heimamenn geri það. "Verandi menntuð sem mannfræðingur veit ég svo margt um orsakir betls og afleiðingar þess að gefa betlurum, en á sama tíma er erfitt að snúa sér frá smástelpu sem kemur til manns, vímuð af lími, og biður um pening" segir Ásdís og heldur áfram:"Það er ekki hægt að fara varhluta af því að upplifa fátækt og stéttaskiptingu á Indlandi, og við erum flest meðvituð um hana í gegnum fjölmiðla og netið. Hins vegar má það ekki gleymast í þessari umræðu að bera virðingu fyrir heimalandi fólks og menningu og ekki bara tala um hvað allt er fátæklegt." Tíminn á Indlandi var notaður óspart til að upplifa ólíkan menningarheim og kennaranám í Brahmani Yoga. Þau tóku 500 stunda réttindin í jóga en það var Ingibjörg Stefánsdóttir sem kynntu þau fyrir náminu og ashtanga-jóga.Myndirnar tala sínu máli um lífið á Indlandi þar sem Ásdís og Baldur upplifuðu ótalmörg ævintýri og eftir sitja tilfinningar eins auðmýkt, kærleikur og mikill lærdómur. "Indverska ríkisstjórnin er með slagorðið Incredible India, sem smellpassar. Það er ótrúlegt að vera þarna, í góðri og slæmri merkingu þess orðs. Indland gerir mann orðlausan og ég get aldrei almennilega svarað spurningunni: "Hvernig er Indland?" Það er ótrúlegt, í þeim skilningi að maður trúir ekki stundum því sem er fyrir framan augu manns," segir Ásdís að lokum.
Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Fleiri fréttir Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið