Umfjöllun: Hvíta-Rússland - Ísland 29-23 Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. júní 2013 09:42 Mynd/Vilhelm
Ísland tapaði sínum fyrsta leik í undankeppni EM 2014 eftir slæma frammistöðu í Hvíta-Rússlandi. Strákarnir eiga þó enn góðan möguleika á að vinna riðilinn. Heimamenn voru betri á öllum sviðum í dag og voru með yfirburði í leiknum frá fyrstu mínútu. Sóknarleikur Íslands var í molum og það var ekki fyrr en á lokamínútunum að strákarnir réttu aðeins úr kútnum. En þá var sigur Hvíta-Rússlands löngu tryggður. Íslendingar geta helst huggað sig við að liðið hafði betur í innbyrðisviðureignunum við Hvít-Rússa og verða því ofar í töflunni ef liðin enda jöfn að stigum. Ísland er með átta stig en Hvíta-Rússland sjö og dugir því okkar mönnum jafntefli á sunnudag til að tryggja efsta sætið. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk fyrir Ísland í dag og Rúnar Kárason fimm. Fjölmarga lykilmenn vantaði í íslenska liðið en Hvít-Rússar voru einnig án Siarhei Rutenka, síns langbesta leikmanns. Jafnræði var í leiknum fyrsta stundarfjórðunginn en þá skoruðu heimamenn fjögur mörk í röð. Þeir létu forystuna aldrei af hendi eftir það. Ísland var í tómu basli með sóknarleikinn sinn. Tapaðir boltar voru fjölmargir og skotnýtingin með versta móti. Vitali Charapenka, markvörður Hvíta-Rússlands, varði fjölmörg skot og heimamenn gengu á lagið í hraðaupphlaupunum sem urðu sjö talsins í fyrri hálfleik. Þetta átti aðeins eftir að lagast í seinni hálfleik en strákarnir voru þó aldrei nálægt því að ógna forystu heimamanna. Hún varð mest tíu mörk og virtist engu skipta hvað heimamenn buðu upp á í sóknarleik sínum - yfirleitt hafnaði boltinn í íslenska markinu. Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson byrjaði vel í leiknum en það dró af honum. Ernir Hrafn Arnarsson var svo besti leikmaður Íslands í seinni hálfleik. Sem fyrr segir vantar fjölmarga leikmenn í íslenska liðið auk þess sem að margir þeirra sem spiluðu í dag hafa verið að glíma við meiðsli og skortir leikæfingu. Meðal þeirra má nefna Arnór Atlason, Rúnar Kárason og Kára Kristján Kristjánsson. Það er þó vonandi að þeir reynsluminni sem fengu tækifærið í dag hafi lært mikilvæga lexíu því frammistaða liðsins í heild sinni var langt frá þeim gæðaflokki sem íslenska landsliðið hefur kennt sig við undanfarin ár. Sjálfsagt hefur ekki heldur hjálpað til að Ísland hafi verið búið að tryggja sér sigur í riðlinum og mátti í raun við því að tapa þessum leik. Nú þarf „aðeins“ sigur gegn Rúmeníu í kveðjuleik Ólafs Stefánssonar á sunnudaginn til að tryggja sigur í riðlinum en það er einnig ljóst að önnur eins frammistaða eins og liðið bauð upp á í dag mun duga skammt á sunnudaginn.
Handbolti Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Fótbolti Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Fótbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Fótbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Handbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira