Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Noregur 26-28 Guðmundur Marinó Ingvarsson í Laugardalshöll skrifar 16. júní 2013 12:49
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta kom verulega á óvart þegar það tapaði með aðeins tveggja marka mun fyrir stöllum sínum frá Noregi 28-26 í hörku leik í Laugardalshöll í dag. Ísland var 15-13 yfir í hálfleik. Ísland skoraði 12 mörk úr hröðum upphlaupum í leiknum. Önnur bylgja liðsins var frábær og þá sérstaklega í fyrri hállfeik. Heims- og Ólympíumeistarar Noregs áttu í miklum vandræðum þegar Ísland keyrði upp hraðann en norska liðið er þekkt fyrir sinn hraða leik. Liðin skiptust á að leiða í fyrri hálfleik en Ísland náði tveggja marka forystu fyrir hálfleik með góðum lokasprett. Norska liðið var sterkara í seinni hálfleik og sýndi styrk sinn í varnarleiknum þar sem liðinu gekk mun betur að ráða við hraða íslenska liðsins. Noregur náði mest fimm marka forystu í seinni hálfleik 26-21 en Ísland náði að rétta hlut sinn á síðustu mínútunum og tveggja marka tap staðreynd. Varnarleikur Íslands gekk á köflum vel en markvarslan var ekki mikil og má segja að munurinn á liðinum í dag hafi verið markvarslan en Silje Solberg varði mjög vel í marki Noregs. Liðin mætast aftur á þriðjudagskvöldið á Selfossi. Ágúst: Vorum agaðar„Varnarleikurinn var frábær og skilar okkur mörgum hraðaupphlaupsmörkum. Það er stór þáttur í þessu og að sama skapi var sóknarleikurinn mjög vel útfærður,“ sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari Íslands. „Sóknarleikurinn var mjög agaður og vel skipulagður og vel stýrt af miðjumönnum liðsins. Við gáfum fá tækifæri á okkur í hraðaupphlaupunum og það er lykillinn á móti Noregi. „Við vorum agaðar og vorum ekki að taka einhverjar þvælu ákvarðanir og rugl sendingar og það skilaði þessu í dag,“ sagði Ágúst um hve fáum boltum Ísland tapaði í leiknum. „Við mætum með tvo unga markmenn hér í dag og vorum án okkar leikreyndustu markmanna en Dröfn og Sunneva leystu mjög vel úr þessu. Það voru einhverir boltar sem þær gátu tekið en þetta er góður skóli fyrir þær. Þetta eru framtíðar markmenn. Það er gott fyrir þær að fá þessa leiki „Við fórum með nokkur góð tækifæri og hún ver hátt í 20 bolta hinu megin. Heilt yfir var þetta vel útfærður leikur og mikil barátta og leikgleði í hópnum. Ég var ánægður með það. „Við getum verið sátt við þetta þó maður vilji auðvitað alltaf vinna. Þetta var vel útfært og við ætlum að mæta af sama krafti á Selfoss á þriðjudaginn. Það er gaman að spila á Selfossi, Selfyssingar er góðir stuðningsmenn og vanir að fjölmenna á leikina. Við hlökkum til og ætlum að sýna stöðugleika,“ sagði Ágúst. Hrafnhildur: Þetta var lífs nauðsynlegt„Þetta var mjög jákvætt. Við þurftum virkilega á þessu að halda eftir mjög dapra frammistöðu gegn Tékkum,“ sagði Hrafnhildur Skúladóttir eftir þennan góða leik í dag. „Það er skemmtilegt að sjá hvað við skorum mörg mörk úr annarri bylgju. Það vantaði á móti Tékkum. Það var allt annar bragur á þessu og þá verður allt mikið auðveldara eins og sést á því að við skorum 26 mörk í dag. „Það er pínu stressandi að fara að spila við þetta lið sem við erum vön að tapa með fimmtán til tuttugu mörkum fyrir, það er aldrei gaman. Við vorum ákveðnar í því að láta þetta norska lið ekki flengja okkur enn einu sinni. „Það var nauðsynlegt fyrir liðið á þessum tímapunkti að ná góðum leik og ná annarri bylgju. Það var lífs nauðsynlegt,“ sagði Hrafnhildur Þórir: Höfum ekkert kíkt á sóknarleikinn„Þetta var eins og búast mátti við. Ég hefði viljað sjá okkur aðeins grimmari í fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn var fínn,“ sagði Þórir Hergeirsson eftir leikinn. „Við erum að spila með eina og eina sem eru með mikla reynslu en þær eru þungar og er kannski ekki topp mótiveraðar í svona leiki á þessum tíma en þessar ungu þurfa að spila og þær spila mikið. „Við erum með reynslu lítið lið ef við tökum frá tvo til þrjá lykilmenn. Stelpur sem eru með undir 20 landsleiki og þær eru að spila mikið hér sem er nauðsynlegt. „Ég er ánægur með seinni hálfleikinn, sérstaklega varnarlega. Við náðum að stilla okkur rétt og vorum að spila betur. Við höfum verið að vinna með þessa 5-1 vörn en höfum ekkert kíkt á sóknarleikinn, ekki í eina mínútu. „Það hefur verið áhersla á vörn, þrek og hópefli og annað. Sóknarleikurinn ber þess merki og var heldur ráðleysislegur inn á milli. Við kíkjum á það á morgun og lagfærum fyrir seinni leikinn,“ sagði Þórir sem var heilt yfir ánægður með leikinn. „Ísland lék vel, agað og slógust og þær eru stoltar hér á heimavelli og eru mjög góður andstæðingur fyrir okkur á þessum tímapunkti,“ sagði Þórir.
Handbolti Mest lesið Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Handbolti Linsan datt út en varði samt tvö víti Enski boltinn Fyrirliðinn kom til bjargar og Liverpool fagnaði seint í fimmta sinn Fótbolti Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn Sjáðu mörkin úr einum ótrúlegasta hálfleik í sögu Meistaradeildarinnar Fótbolti Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn „Þessi viðbrögð eru auðvitað ekki í lagi“ Fótbolti Mamma reddaði treyjunum frá Thuram bræðrunum Sport Magnús Ver í 55. sæti á lista yfir bestu íþróttamenn sögunnar Sport Kallað eftir feitri sekt og tapi en Stjarnan þarf að greiða 150 þúsund Íslenski boltinn Fleiri fréttir Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda ÍR komið á blað þökk sé ótrúlegri frammistöðu Baldurs Fritz Fimm íslensk mörk í stórtapi Kolstad Janus Daði komst ekki á blað í naumu tapi Bognir en hvergi bangnir: „Ekki alltaf sólskin og sleikjóar“ Ómar Ingi fór áfram hamförum Engin vandamál hjá Arnari Birki og félögum Óðinn markahæstur á vellinum Rétthentu landsliðshornamennirnir í stuði Gamla merkið verður áfram á landsliðsbúningunum Birna Berg snýr aftur í landsliðið og tveir nýliðar Reif gjallarhornið úr höndum stuðningsmanns eftir fúkyrðaflaum Donni og félagar örugglega áfram í Evrópudeildinni Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn