Innlent

Tossinn sem varð prófessor

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
„Ég er dropout úr menntaskóla, ég var rekinn úr myndlistaskólanum en samt sit ég uppi sem prófessor við Listaháskóla Íslands,“ segir Listamaðurinn Goddur. Hann gerir upp við skólakerfið í síðasta þætti Tossana í kvöld, en viðtalið er eins konar eldmessa hans sem snýst um mikilvægi skapandi hugsunar í skólastarfi.

Goddur segir tilveruna annars vegar vera það jarðbundna og mælanlega - og hinsvegar snúast um tilfinningar og innsæi. „Galdurinn verður til þegar þessir pólar mætast,“ segir hann. „Skólarnir aftur á móti kenna bara það sem er jarðbundið og mælanlegt en setja ímyndunaraflið út á götuna.“

Goddur tekur hliðstæður úr veruleikanum sem dæmi. Þannig er PC tölva á þessu jarðbundna sviði, en aftur á móti er Mac tölva á hinu skapandi sviði. „Allar tölvur voru eins þar til makkinn kom til sögunnar, þá varð allt í einu  hægt að vinna eftir táknum en ekki formúlum."

Þá heimfærir hann Bítlana yfir á þessi fjögur svið. Þeir voru allir sterkir á sínum sviðum en þegar þeir sameinuðu krafta sína urðu þeir gríðarlega góð heild. „Saman urðu þeir miklu betra band heldur en hver einstaklingur sem gaf út sólóplötu," segir Goddur.

Goddur er ekki hrifin af skólakerfinu eins og það er í dag. „Skólakerfið þurrkar þá út sem eru óþægir eða óþægilegir með tilfinningar og hugmyndir."

Lokaþáttur Tossana verður sýndur kl 19.25 á Stöð 2 í kvöld. Viðtalið í spilaranum hér að ofan er í lengri útgáfu en hægt var að koma fyrir í þáttunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×