Erlent

Oscar Pistorius kemur fyrir dóm á þriðjudag

Oscar er niðurbrotinn maður
Oscar er niðurbrotinn maður Mynd/AFP

„Oscar Pistorius er niðurbrotinn maður sem þarf að lifa með þeirri staðreynd að hann drap ástina í lífi sínu,“ segir frændi hans Arnold Pistorius.

Spretthlauparinn bíður nú dóms eftir að hann játaði að hafa skotið Reevu Steenkamp kærustu sína til bana. Hann segist þó hafa haldið að hún væri innbrotsþjófur. Hann var úrskurðaður í farbann í febrúar, nokkrum dögum eftir að hann skaut hana.

Hann hefur verið ákærður fyrir morð, og kemur fyrir dóm á þriðjudaginn.

„Hann er með myndir af henni út um allt, inni í stofu og inni á herbergi. Hvað myndir þú gera ef ástin í lífi þínu myndi deyja, og það væri þér að kenna? Hvernig myndi þér líða? Það er ekki hægt að setja sig í hans spor,“ segir frændinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×