"Íslenskri tónlistarmenningu til skammar" Jóhannes Stefánsson skrifar 7. júní 2013 14:08 Nú gustar um Keflavík Music Festival. Mynd/ Vilhjálmur
Hljómsveitin Skálmöld gaf út frá sér yfirlýsingu á Facebook síðu sinni nú fyrir skemmstu. Óhætt er að segja að hljómsveitin sé ósátt við tónleikahátíðina Keflavík Music Festival, en sveitin spilaði fyrir fámennu tjaldi í gærkvöldi. Skálmöld segir hátíðina „í skásta falli dónaskapur og í verstu tilfellum glæpastarfsemi," enda feli framkoma tónleikahaldara og skipuleggjenda hennar í sér vanvirðingu og samningsbrot við ýmsa sem koma að hátíðinni. Í yfirlýsingunni segir meðal annars: „Aðstandendur Keflavík Music Festival, nú hysjið þið upp um ykkur. Hátíðin ykkar er ónýt, fjöldi listamanna hafa afboðað komu sína, tækni-, veitinga- og gæslumál eru í fullkomnum ólestri og þið eruð því með falsaða vöru í höndunum. Það eina í stöðunni er að endurgreiða hátíðargestum aðgangseyrinn að fullu, gera upp við alla þá listamenn, starfsmenn og aðra sem eigi inni hjá ykkur og klára svo helgina eins vel mögulega hægt er. Sýnið af ykkur snefil af stórmennsku, takið skellinn af ykkar eigin klúðri og þá mögulega fáið þið annan séns í okkar bókum." Fjörugar umræður hafa skapast á Facebook vegna yfirlýsingarinnar, en sitt sýnist hverjum um málið og sterkar skoðanir eru viðraðar í athugasemdunum. Margir taka upp hanskann fyrir hátíðina en aðrir bæta við ávirðingar Skálmaldar.
Mest lesið Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Innlent Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Innlent Fleiri fréttir Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Sjá meira