Fótbolti

Stórt tap hjá Eiði Smára og félögum

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. Mynd/Nordic Photos/Getty

Anderlecht og Zulte-Waregem munu mætast í hreinum úrslitaleik um belgíska meistaratitilinn eftir sigur beggja liða í næstsíðustu umferð meistaraumspilsins í belgísku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Zulte-Waregem vann 5-2 stórsigur á Club Brugge en þar með bundu Ólafur Ingi Skúlason og félagar enda á meistaravonir Club Brugge, liðs Eiðs Smára Guðjohnsen. Báðir komu inn á sem varamenn í kvöld.

Anderlecht vann á sama tíma 4-2 sigur á Lokeren á útivelli og er liðið nú með tveggja stiga forystu á Zulte-Waregem fyrir lokaumferðina. Þessi lið mætast á sunnudaginn og dugir Anderlecht jafntefli til að tryggja sér sinn 32. meistaratitil frá upphafi.

Ólafur Ingi Skúlason og Eiður Smári Guðjohnsen komu báðir inn á sem varamenn á 68. mínútu leiksins en staðan var þá 4-1 fyrir Zulte-Waregem sem lék manni fleiri frá 11. mínútu leiksins.

Eiður Smári lét finna fyrir sér og fékk gula spjaldið á 80. mínútu en skömmu áður hafði Ryan Donk minnkaði muninn í 4-2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×