Íslenski boltinn

Stjarnan hefur aldrei unnið deildarleik á KR-vellinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Óskar Örn Hauksson hefur skorað flest mörk fyrir KR í leikjum liðsins á móti Stjörninni á KR-vellinum.
Óskar Örn Hauksson hefur skorað flest mörk fyrir KR í leikjum liðsins á móti Stjörninni á KR-vellinum. Mynd/Daníel
KR tekur á móti Stjörnunni í stórleik kvöldsins í Pepsi-deild karla í fótbolta en Garðbæingar eru til alls líklegir í sumar enda komnir með Veigar Pál Gunnarsson í framlínuna við hlið Garðars Jóhannssonar.

Stjörnumenn gefa skrifað söguna í leiknum í kvöld sem hefst klukkan 19.15 á KR-vellinum og verður bæði í beinni textalýsingu á Vísi sem og í beinni sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 Sport.

Þetta verður ellefti leikur Stjörnunnar á KR-vellinum í efstu deild og þeir hafa ekki náð að fagna sigri. KR hefur unnið fimm leiki og fimm leikjum hefur endað með jafntefli þar á meðal leikirnir undanfarin tvö ár.

Stjörnumenn hafa skorað 9 mörk í leikjunum 11 þar af sjö þeirra undanfarin fjögur tímabil. Þessi sjö mörk liðsins frá 2009 hafa aðeins skilað tveimur stigum því KR-ingar hafa skorað á sama tíma 13 mörk.



Leikir KR og Stjörnunnar á KR-velli í efstu deild:

1990 KR - Stjarnan 1-0 (0-0)

1-0 Ragnar Margeirsson (56.)

1991 KR - Stjarnan 1-1 (0-0)

1-0 Heimir Guðjónsson (68.), 1-1 Sveinbjörn Hákonarson (79.)

1994 KR - Stjarnan 2-0 (2-0)

1-0 Izudin Daði Dervic (27.), 2-0 Salih Heimir Porca (45.)

1996 KR - Stjarnan 1-1 (1-1)

0-1 Helgi Már Björgvinsson, víti (32.), 1-1 Ríkharður Daðason (37.)

1997 KR - Stjarnan 0-0 (0-0)

2000 KR - Stjarnan 3-0 (2-0)

1-0 Andri Sigþórsson (22.), 2-0 Arnar Jón Sigurgeirsson (30.), 3-0 Andri Sigþórsson, víti (75.)

2009 KR - Stjarnan 7-3 (3-0)

1-0 Guðmundur Benediktsson (12.), 2-0 Bjarni Guðjónsson (33.), 3-0 Óskar Örn Hauksson (35.), 4-0 Gunnar Örn Jónsson (50.), 4-1 Þorvaldur Árnason (54.), 4-2 Steinþór Freyr Þorsteinsson (57.), 5-2 Óskar Örn Hauksson (58.), 6-2 Björgólfur Takefusa (60.), 6-3

Þorvaldur Árnason (66.), 7-3 Óskar Örn Hauksson (79.)

2010 KR - Stjarnan 3-1 (1-1)

0-1 Þorvaldur Árnason (13.), 1-1 Kjartan Henry Finnbogason (33.), 2-1 Björgólfur Takefusa (59.), 3-1 Guðmundur Reynir Gunnarsson (80.)

2011 KR - Stjarnan 1-1 (1-1)

1-0 Guðjón Baldvinsson (25.), 1-1 Ellert Hreinsson (52.)

2012 KR - Stjarnan 2-2 (1-0)

1-0 Emil Atlason (12.), 2-0 Kjartan Henry Finnbogason (68.), 2-1 Hörður Árnason (73.), 2-2 Atli Jóhannsson (84.)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×