Íslenski boltinn

Blikar í úrslit Lengjubikarsins

Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld. mynd/vilhelm
Breiðablik komst í kvöld í úrslit Lengjubikarsins í fótbolta. Blikar lögðu þá Víking Ólafsvík, 2-1, í Kórnum.

Steinar Már Ragnarsson kom Víkingum yfir eftir stundarfjórðungsleik en Árni Vilhjálmsson jafnaði skömmu síðar.

Það var svo Andri Rafn Yeoman sem skoraði sigurmarkið ellefu mínútum fyrir leikslok.

Breiðablik mætir Val eða Stjörnunni í úrslitum.

Upplýsingar um markaskorara, fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×