Innlent

Katrín sátt við baráttu flokks síns

Jón Hákon Halldórsson skrifar
„Ég held að við getum verið sátt við okkar baráttu og ég held að við höfum bætt aðeins í á lokametrunum,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, í samtali við Karen Kjartansdóttur fréttamann á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísi þegar meginlínur lágu fyrir í kosningunum í nótt.

Hún sagði að barátta flokksins hefði verið einlæg og einkennst af mikilli samstöðu hjá flokknum. „Það er auðvitað gott merki,“ segir hún.

Katrín sagði of snemmt að segja til um hvort flokkurinnn verði í stjórnarandstöðu eftir kosningar. Hún sagði að verkefnin framundan séu þannig að ríkisstjórnin þurfi að hafa breiða skírskotun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×