Innlent

ding! ding! ...Óttarr náði á þing

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
ding! ding! ...Óttarr á þing! var slagorð Óttarrs í kosningabaráttunni.
ding! ding! ...Óttarr á þing! var slagorð Óttarrs í kosningabaráttunni. Mynd/Facebook
„Maður er dálítið að átta sig á þessu núna en þetta leggst ágætlega í mig,“ segir Óttarr Proppé um úrslit kosninganna í gær, en hann er á leið á þing fyrir Bjarta Framtíð.

„Við fórum af stað í þennan slag með opin augun og fengum frábæra niðurstöðu,“ segir Óttarr, og viðurkennir að hafa undanfarið átt frekar von á þingsætinu en ekki. „Listarnir voru auðvitað þannig mannaðir að við hefðum þurft að ná svona 22 til 23 mönnum inn svo ég yrði fullkomlega sáttur.“

Óttarr var illa sofinn eftir nóttina, en hann vakti eftir síðustu tölum, og var á tímabili tvísýnt með það hvort hann næði sæti. Hann segist þó aldrei hafa verið stressaður.

„Nei, en ég var stressaður á tímabili þegar ég horfði á hana Heiðu mína detta inn og út, og enda svo úti. En hún gerir sitt gagn bæði innan þings og utan.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×