Innlent

Formennirnir á Stöð 2 í kvöld

Formenn flokkanna, sem fengu menn kjörna á Alþingi í þingkosningunum í gær, verða í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld, um klukkan 18.55, strax að loknum fréttum.

Nú þegar dómur kjósenda liggur fyrir, og nýjustu tíðindi hafa borist frá Bessastöðum, frá blaðamannafundi forseta Íslands, verður farið yfir það hversvegna fór sem fór, hvaða skilaboð felast í úrslitunum og hverjir eru að fara að mynda ríkisstjórn. Gert er ráð fyrir að umræðan standi í um 30 mínútur.

Þættinum stýrir Kristján Már Unnarsson, fréttastjóri Stöðvar 2, og horfa má á þáttinn hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×