Innlent

Frambjóðandi Framsóknar vildi endurupptöku kynferðisbrotamáls

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Meðferðarheimilið Árbót í Aðaldal.
Meðferðarheimilið Árbót í Aðaldal.
Hjálmar Bogi Hafliðason, frambjóðandi Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, skrifaði undir ákorun til stjórnvalda um að beita sér fyrir endurupptöku máls Jóns Dagbjartssonar, starfsmanns meðferðarheimilisins Árbótar í Aðaldal, sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi árið 2010 fyrir kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum. Málið fór fyrir Hæstarétt, sem þyngdi dóminn um hálft ár.

Stúlkurnar voru vistaðar á meðferðarheimilinu á vegum barnaverndaryfirvalda og voru sextán og átján ára þegar brotin voru framin, en í dómi Hæstaréttar kemur fram að þau hafi verið gróf.

Málið vakti mikla athygli og þótti dómurinn sögulegur vegna þess að aldrei fyrr hafði sannast fyrir dómi að börn hefðu sætt kynferðisofbeldi af hálfu starfsmanns uppeldisstofnunar á Íslandi.

Í áskoruninni, sem alls 358 skrifuðu undir, var þess krafist að mál Jóns fengi „sanngjarna meðferð sem hann sannanlega fékk ekki á meðan það var rekið fyrir dómstólum“.

„Þú færð náttúrlega engin svör, það er ekki það,“ sagði Hjálmar Bogi þegar fréttastofa Vísis spurði hann hvers vegna nafn hans væri að finna á listanum. „Ég ætla ekkert að kommenta á það.“

Starfaði sjálfur á meðferðarheimilinu

Hjálmar, sem starfar sem grunnskólakennari á Húsavík, skipar 5. sæti fyrir Framsóknarflokkinn í Norðausturkjördæmi. Miðað við fylgi flokksins í nýjustu könnunum er Hjálmar Bogi því öruggur inn sem varaþingmaður.

Þrátt fyrir að vilja ekki tjá sig um veru sína á listanum segist Hjálmar Bogi þekkja Jón Dagbjartsson.

„Ég bara þekki hann. Ég var sjálfur starfsmaður á þessu heimili á sínum tíma. Það er ekkert leyndarmál. Var þar tvö sumur sem sumarstarfsmaður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×