Íslenski boltinn

David James við það að skrifa undir hjá ÍBV

Stefán Árni Pálsson skrifar
David James fagnar hér bikarsigri Portsmouth með Hermanni Hreiðarssyni vorið 2008.
David James fagnar hér bikarsigri Portsmouth með Hermanni Hreiðarssyni vorið 2008. Mynd/Nordic Photos/Getty
Markvörðurinn David James mun vera lentur í Vestmannaeyjum til að ganga frá samningi við knattspyrnuliðið ÍBV en þetta kemur fram á vefsíðu Eyjafrétta.

James hefur lengi verið orðaður við félagið en hann lék með Hermanni Hreiðarssyni, þjálfara ÍBV, hjá Portsmouth.

David James var lengi vel landsliðsmarkvörður Englendinga og því enginn aukvissi.

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta mun James skrifa undir samning við ÍBV á næstum dögum en hann mun vera aðalmarkvörður liðsins sem og aðstoðarþjálfari Eyjamanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×