Fær tvo milljarða í laun en spilar ekki mínútu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2013 18:15 Andrew Bynum. Mynd/Nordic Photos/Getty
Andrew Bynum, miðherji Philadelphia 76ers og fyrrum miðherji Los Angeles Lakers, hefur ekki enn náð að spila leik með nýja liði sínu á þessu tímabili og mun heldur ekki bæta úr því á næstunni. Bynum hefur verið að glíma við hnémeiðsli alveg síðan að Philadelphia 76ers fékk hann í skiptum frá Lakers síðasta sumar en í þeim skiptum endaði Dwight Howard meðal annars hjá Los Angeles Lakers. Nú er orðið ljóst að miðherjinn stóri og stæðilegi þarf að fara í hnéaðgerð og missir því af öllu tímabilinu. Philadelphia 76ers lét frá sér þrjá leikmenn fyrir Andrew Bynum. Nik Vucevic og Mo Harkless fóru til Orlando og Andre Iguodala endaði hjá Denver Nuggets. Andrew Bynum er á síðasta ári samnings síns sem hefur honum 16,9 milljónir dollara í laun eða meira en 2,1 milljarð íslenskra króna. Félagið þarf þó ekki að borga laun hans í vetur því tryggingarnar fá þann stóra reikning þar sem að Bynum náði ekki að spila eina einustu mínútu á tímabilinu. Nú er bara stóra spurningin hvað gerist í sumar því það er ekki enn ljóst hvort að 76ers-liðið munu bjóða honum nýjan samning. Houston Rockets og Dallas Mavericks hafa bæði nægt rúm undir launaþakinu til að bjóða Andrew Bynum góðan samning í sumar en hvort þau vilji taka áhættuna á þessum meiðslapésa er önnur saga.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira