Björn Valur fer fram 20. febrúar 2013 16:20 Björn Valur Gíslason.
Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, ætlar að gefa kost á sér í embætti varaformanns Vg á landsfundi flokksins sem fram fer á Hótel Nordica næstu helgi. Björn Valur færði sig um set úr Norðausturkjördæmi í Reykjavíkurkjördæmi í forvali flokksins fyrir nokkrum vikum en fékk ekki öruggt sæti og er því viðbúið að hann detti út af þingi eftir næstu kosningar. Daníel Haukur Arnarsson, stjórnarmaður í Ungum Vinstri grænum, hefur einnig lýst formlega yfir framboði í varaformannsembættið. Hér má lesa yfirlýsingu Björns Vals í heild sinni: Ég hef ákveðið að gefa kost á mér sem varaformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins sem haldinn verður um næstu helgi og leggja þannig áfram fram krafta mína í þágu þess málstaðar sem flokkurinn stendur fyrir. Ég hef tekið þátt í störfum flokksins frá stofnun hans og gegnt mörgum trúnaðarstörfum á hans vegum jafnt á sveitarstjórnarstiginu sem og á landsvísu. Frá því ég var kjörinn á þing vorið 2009 hefur þingflokkurinn falið mér að vera talsmaður sinn í efnahags- og fjármálum þjóðarinnar á Alþingi og takast þar á því þau gríðarlega þungu verkefni sem frjálshyggju tilraun áranna þar á undan skyldi eftir sig. Ég hef setið í fjárlaganefnd þingsins frá upphafi kjörtímabils, fyrst sem varaformaður og síðan sem formaður nefndarinnar. Ég hef sömuleiðis á þessu tímabili verið formaður samgöngunefndar þingsins og átt sæti í atvinnuveganefndum þess. Kjörtímabilið sem nú er að enda hefur fyrst og síðast snúið að því að reisa Ísland við eftir hrun fjármálakerfisins og um leið að skapa grunn að betra og réttlátara samfélagi en leiddi til hrunsins haustið 2008. Þar hefur margt tekist vel og gengið betur en á horfðist í fyrstu þó langt sé frá því að við sem þjóð séum laus undan öllum þeim erfiðleikum sem efnahagshrunið kallaði yfir okkur. Það eru mörg erfið verkefni framundan í íslensku samfélagi sem mikilvægt er að verði leyst á þeim grunni sem lagður hefur verið á síðustu fjórum árum. Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur það erindi í íslenskum stjórnmálum að efla og tryggja félagslega og efnahagslega velferð landsmanna allra og standa vörð um umhverfi og náttúru landsins. Ísland mun ekki ná því að vera það sjálfbæra velferðarsamfélag sem við viljum öll búa í, án Vinstri grænna. Að lokum þakka ég þeim fjölmörgu aðilum sem hafa hvatt mig til að gefa kost á mér í embætti varaformanns. Allar forsendur eru fyrir því að Vinstri græn nái góðum árangri í komandi kosningum og vil ég leggja mitt að mörkum til þess að svo verði.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira