Sigríður Benediktsdóttir í kerfisáhætturáð Danmerkur 21. febrúar 2013 14:37 Sigríður Benediktsdóttir er hagfræðingur að mennt.
Sigríður Benediktsdóttir framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands hefur verið skipuð í nýstofnað kerfisáhætturáð Danmerkur. Það er Annette Vilhelmsen atvinnu- og nýsköpunarráðherra Danmerkur sem skipar kerfisáhætturáðið, en það er skipað 10 einstaklingum, þ.e. fulltrúum Seðlabanka Danmerkur, Fjármálaeftirlits Danmerkur, ráðuneyta á sviði efnahags-, atvinnu- og fjármála og óháðum sérfræðingum. Sigríður er skipuð í ráðið sem slíkur. Seðlabankastjóri Danmerkur er formaður ráðsins. Hlutverk kerfisáhætturáðs Danmerkur er að greina og hafa eftirlit með fjárhagslegum áhættuþáttum í Danmörku, vara við hættu á því að kerfisáhætta sé að myndast, koma með tillögur til ríkisstjórnar um lagabreytingar á sviði fjármála sem geta dregið úr því að kerfisáhætta myndist og gefa skýrslu til Kerfisáhætturáðs Evrópu (ESRB). Sigríður Benediktsdóttir hóf störf í Seðlabanka Íslands fyrir rúmu ári, eða 1. janúar 2012, en þar áður var hún aðstoðarmaður deildarforseta við hagfræðideild Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Sigríður lauk BS-prófi í hagfræði í Háskóla Íslands 1995 og BS-prófi í tölvunarfræðum frá sama skóla 1998. Hún lauk doktorsprófi í hagfræði frá Yale-háskóla í maí 2005. Frá árinu 2007 starfaði Sigríður sem kennari og aðstoðarmaður deildarforseta við hagfræðideild Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Samhliða því hún stundaði rannsóknir á sviði fjármálahagfræði, með áherslu á fjármálamarkaði. Hún starfaði sem hagfræðingur hjá Seðlabanka Bandaríkjanna á árunum 2005-2007. Sigríður var skipuð í rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið árið 2008. Í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands segir að skipun Sigríðar Benediktsdóttur í kerfisáhætturáð Danmerkur sé mikil viðurkenning fyrir hana persónulega, en einnig viðurkenning á því starfi sem hafi undanfarið átt sér stað á þessu sviði í Seðlabanka Íslands. Seðlabanki Íslands bindi miklar vonir við að seta Sigríðar í kerfisáhætturáði Danmerkur muni stuðla að miðlun reynslu á milli landanna og gagnast Íslandi við uppbyggingu eftirlits með og viðbrögðum við kerfisáhættu í fjármálakerfinu.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fleiri fréttir Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Sjá meira