Innlent

Tveir heilar og ljóska hlutskörpust

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Það er ávalt góð stemmning í Háskólabíó þar sem keppnin fer fram.
Það er ávalt góð stemmning í Háskólabíó þar sem keppnin fer fram. Mynd/María Skúladóttir
Liðið „Two brains and a blonde" bar sigur úr býtum á Hönnunarkeppni Véla- og iðnaðarverkfræðinema sem fram fór síðastliðinn fimmtudag.

Átta lið tóku þátt í keppninni sem fór fram í 22. skiptið í ár. Í ár þurftu liðin að hanna faratæki sem gæti farið niður tröppur, tekið upp tennisbolta og kasta boltanum í körfu. Þá þurfti tækið að komast upp hallandi braut þar sem það átti að stöðvast. Til að gera þrautina enn erfiðari var næstefsta þrepið í tröppunum ósamsíða hinum.

Faratækin höfðu að hámarki 2,5 mínútur til þess að komast brautina á enda.

Páll Guðjónsson, rafeindavirki við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands, tók meðfylgjandi myndband á keppninni síðastliðinn fimmtudag.



„Two brains and a blonde" var skipað þeim Davíð Erni Símonarsyni og Hirti Geir Björnssyni, BS-nemum í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands, og Olgu Lilju Bjarnadóttur, nemanda við Listaháskóla Íslands. Þau hlaut glæsilega vinninga frá verslun Nýherja að andvirði 400 þúsund króna, þar á meðal Sony Xperia spjaldtölvu.

Marel veitti verðlaun fyrir bestu hönnunina og einnig þá frumlegustu.

Besta hönnunin

M1 Abrams

Sigurbjörn Jónsson, BS-nemi í iðnaðarverkfræði við HÍ

Ragnar Smári Ragnarsson, BS-nemi í iðnaðarverkfræði við HÍ

Lea Tómasdóttir

Frumlegasta hönnunin

One Direction

Árný Rut Jónsdóttir, BS-nemi í iðnaðarverkfræði við HÍ

Skúli Freyr Hinriksson, BS-nemi í hugbúnaðarverkfræði við HÍ

Signý Tryggvadóttir, BS-nemi í vélaverkfræði

Darri Kristmundsson, BS-nemi í vélaverkfræði

Það eru nemendur og kennarar í véla- og iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands sem standa saman að keppninni árlegu.

Sigurliðið "Two brains and a blonde"Mynd/María Skúladóttir
Frekari umfjöllun og myndir frá Hönnunarkeppninni má sjá á Student.is, fréttasíðu blaða- og fréttamennskunema við Háskóla Íslands, og einnig á heimasíðu Háskóla Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×