Erlent

Var að undirbúa óvænta Valentínusargjöf

Oscar Pistorius ásamt Reevu Steenkamp nýlega.
Oscar Pistorius ásamt Reevu Steenkamp nýlega.
Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius kemur fyrir dómara síðar í dag þar sem krafist verður gæsluvarðhalds yfir honum og á hann yfir höfði sér ákæru fyrir morð.

Eins og greint var frá í morgun skaut hann kærustu sína til bana á heimili þeirra í Pretoria snemma í morgun en fjölmiðlar segja að hann hafi talið að hún væri innbrotsþjófur.

Kærastan hét Reeva Steenkamp og var þrítug þegar hún lést í nótt. Þau höfðu verið saman í tvo mánuði. Breska ríkisútvarpið segir að hún hafi verið með nokkur skotsár á höfði og á efri hluta líkamans. Sjúkraflutningamenn náðu ekki að bjarga lífi hennar og lést hún á heimili íþróttahetjunnar. 9mm skammbyssa fannst á vettvangi.

Breska blaðið The Guardian segir að líklegt sé að Steenkamp hafi verið að undirbúa óvænta Valentínusargjöf þegar Pistorius vaknaði og taldi að innbrotsþjófur hafi verið á heimilinu.

Í gærkvöldi setti hún eftirfarandi skilaboð á Twitter: „Hvað ætlið þið að gera fyrir ástina ykkar á morgun?" og í svari til vinar á samskiptasíðunni stuttu síðar sagði hún: „Það hljómar mjög vel! Wow þetta er það sem þetta snýst um! Þetta á að vera dagur ástarinnar fyrir alla, megi hann vera ánægjulegur!"

Fyrir utan heimili Pistorius í morgunMynd/AP
Umboðsmaður hans Peet van Zyl var á leið til Pretoria þegar Daily Mail náði á hann í morgun. „Ég vona að ég geti spjallað við hann á lögreglustöðinni. Oscar er hógvær og viðkunnalegur náungi – Ég er viss um að það sem gerðist hafi verið hræðileg mistök af hans hálfu en ég hef ekki smáatriðin á hreinu eins og stendur," sagði hann við blaðið.

Pistorius er einn af þekktustu íþróttamönnum í Suður Afríku en hann var fyrsti spretthlauparinn í sögunni til að taka þátt í hlaupi á Ólympíuleikum þótt hann hafi misst báða fætur sína. Þetta var í 4x400 boðhlaupinu á Ólympíuleikunum í London síðasta sumar.

Hann tekur þátt í spretthlaupum á gervifótum sem stoðtækjaframleiðandinn Össur smíðar fyrir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×