Innlent

Bætt staða uppljóstrara ræðst af skýrum reglum um þagnarskyldu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Menntamálaráðherra skipaði stýrihópinn.
Menntamálaráðherra skipaði stýrihópinn.
Skýrar reglur um þagnarskyldu opinberra starfsmanna þarf til að tryggja stöðu afhjúpenda (uppljóstrara). Áður er þó brýnt að afmarka nánar til hvaða atriða þagnarskylda opinberra starfsmanna nær hverju sinni. Þetta er á meðal þess sem stýrihópur á vegum menntamálaráðherra, sem fjallar um vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis, kemst að. Hópnum er ætlað að skila tillögum sínum í formi greinargerðar sem á að geyma umfjöllun um helstu álitaefni og stefnumörkun fyrir efnisþætti nauðsynlegra lagabreytinga í samræmi við niðurstöður hennar.

Stýrihópurinn fundaði með Páli Hreinssyni dómara við EFTA-dómstólinn og greindi hann frá rannsókn sinni um þagnarskyldu opinbera starfsmanna. Hugmyndir Páls snúast um að bæta nýjum kafla við stjórnsýslulögin um þagnarskyldu opinberra starfsmanna, þ.e. að reglan um þagnarskyldu verði nánar afmörkuð og þau sjónarmið sem ráða eigi þagnarskyldu nánar dregin fram.

Samkvæmt heimildum Vísis fékk forsætisráðuneytið svo Pál Hreinsson til að semja frumvarp til laga um breytingu á stjórnsýslulögum í samræmi við ábendingar frá stýrihópnum. Með frumvarpinu er stefnt að því að einfalda og samræma lagaákvæði um þagnarskyldu opinberra starfsmanna og skýra skyldur þeirra varðandi meðferð trúnaðarupplýsinga, sbr. þingmálaskrá forsætisráðherra. Hins vegar hefur komið ljós að forsætisráðherra mun ekki leggja frumvarpið fram á yfirstandandi þingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×