Umfjöllun og viðtöl: HK - ÍR 25-20 | Ótrúlegur viðsnúningur Benedikt Grétarsson í Digranesi skrifar 7. febrúar 2013 19:00 Mynd/Valli
HK-menn unnu ótrúlegan endurkomusigur á ÍR í N1 deild karla í handbolta í Digranesi í kvöld en ÍR-ingar náðu mest sjö marka forystu voru 15-9 yfir í hálfleik. HK kom til baka í seinni hálfleik og vann fimm marka sigur 25-20. ÍR var sex mörkum yfir, 16-10, þegar 26 mínútur voru eftir en HK-ingar unnu þessar 26 mínútur 15-4 og þar með leikinn með fimm marka mun. Bjarki Már Elísson skoraði fimmm af sex mörkum sínum á lokakaflanum. Gestirnir úr Breiðholti byrjuðu leikinn mun betur en heimamenn og voru fljótlega komnir með tveggja marka forystu, 1-3. Varnarleikur ÍR var til mikillar fyrirmyndar. Miðjublokkin með Jón Heiðar og Ingimund skilaði mikilli og góðri vinnu og bakverðirnir Björgvin og Máni voru á tánum. ÍR hélt undirtökunum án þess að ná að hrista HK almennilega af sér og þegar hálfleikurinn var rúmlega hálfnaður, munaði einungis tveimur mörkum, 5-7. Þá kom ótrúlegur kafli hjá ÍR-ingum sem hreinlega löbbuðu yfir rænulausa heimamenn og skoruðu 5 mörk í röð og breyttu stöðunni í 5-12. HK neitaði að gefast upp og skoruðu næstu 3 mörk en á þessum kafla fór Bjarki Gunnarsson mikinn. Munurinn skyndilega aðeins 4 mörk, 8-12 og útlitið betra fyrir heimamenn. Þá datt allt í sama farið aftur hjá Kópavogspiltum og ÍR jók muninn aftur. Staðan var 9-15 í hálfleik fyrir ÍR o ggeta HK-ingar í raun talist heppnir að ekki munaði meiru, svo slakir voru þeir í fyrri hálfleik. Síðari hálfleikurinn varð hins vegar einn sá eftirminnilegasti í seinni tíð. HK-menn mættu dýrvitlausir til leiks og með Vilhelm Gauta og Bjarka Má í jötunmóð fóru þeir að saxa á forskot gestanna. Í kjölfar frábær varnarleiks kom frábær markvarsla Björns Inga í markinu og heimamenn minnkuðu muninn sem óðir væru. Þegar 11 mínútur voru til leiksloka, var forskot ÍR gufað upp og staðan jöfn, 17-17. Allur vindur var úr ÍR-ingum og sprækir HK-ingar gengu svo sannarlega á lagið. HK vann næstu níu mínútur 8-0 og það var hreinlega pínlegt að fylgjast með aðförum ÍR-inga á þessum kafla. Það má þó ekki taka það af HK-mönnum að þeir spiluðu frábærlega og áttu svör við öllum aðgerðum Breiðhyltinga. Besta dæmið um frábæran varnarleik HK og hörmulegan leik ÍR, er sú staðreynd að ÍR skoraði ekki mark utan af velli fyrr en eftir rúmar 28 mínútur í síðari hálfleik en þá var liðið einungis búið að skora tvö mörk, bæði úr vítum. Algjört skipbrot hjá ÍR en frábær karaktersigur hjá HK. Kristinn Guðmundsson: Við ætluðum ekki að benda á hvorn annanKristinn Guðmundsson, þjálfari HK, gat leyft sér að fagna með ungabarn í faðmi eftir leikinn „Við ákváðum í hálfleik að hjálpast allir að í verkefninu í stað þess að benda á hvorn annan og taka fulla ábyrgð á okkar leik.“ Kristinn er ekki í vafa hvað skilaði sigrinum „Vörnin og markvarslan var hreint út sagt geðveik í seinni hálfleik og við sýndum bara að við getum þetta. Við vorum eiginlega jafn samhentir í seinni hálfleik og við vorum sundirslitnir í þeim fyrri. Þetta virtist ætla að falla í sama farið og gegn Fram í síðasta leik en ég er rosalega stoltur af liðinu að snúa þessu við.“ HK hefði verið í slæmum málum ef leikurinn hefði tapast og verið komið í botnbaráttu deildarinnar. „Við getum orðað það þannig að þessi hálfleikur koma á algjörum kjörtíma fyrir mig sem þjálfara og fyrir liðið í heild. Þessi frammistaða sýnir okkur að við eigum ekki að þurfa að vera að óttast andstæðingana, hverjir sem þeir eru.“ Vilhelm Gauti: Við fundum skeinipappírinn í hálfleikVilhelm Gauti Bergsveinsson, fyrirliði HK, var þreyttur en brosandi í leikslok „Það var einhver niðurgangspest í okkur í fyrri hálfleik sem skilaði sér upp á bak, yfir herðablöðin og upp að eyrum. Við fundum skeinipappírinn í hálfleik og sýndum mjög góðan karakter hér í seinni hálfleik.“ Varnarleikur HK var hreint út sagt stórfenglegur í síðari hálfleik og Vilhelm var sáttur við sitt lið „Ég held að ef við myndum spila svona varnarleik í 60 mínútur í öllum leikjum, væri ekki spurning hvernig leikirnir færu. Þetta er hins vegar ekkert sjálfgefið að ná upp svona varnarleik. Það þarf gríðarlega einbeitingu, vilja og vinnusemi.“ Vilhelm sagði að hárblásararæða frá Kristni þjálfara hefði aldrei komið „Ótrúlegt en satt, þá var hálfleiksræðan bara róleg og yfirveguð. Menn voru einfaldlega spurðir að því hvort að þeir hefðu trú á verkefninu og svöruðu þeirri spurningu heldur betur í síðari hálfleik.“ Sturla: Aldrei lent í öðru einsReynsluboltinn Sturla Ásgeirsson var niðurlútur í leikslok „Við töluðum saman í hálfleik að mæta tilbúnir, sérstaklega þar sem okkur fannst við ekkert búnir að vera æðislegir, miklu frekar að þeir hefðu bara ekki mætt klárir. Við vorum a.m.k. staðráðnir að missa þetta ekki í eitthvað bull en svo gerist þetta í síðari hálfleik.“ Sturla vildi meina að þessi leikur hefði verið einsdæmi á hans langa ferli. „Ég held að ég hafi aldrei tekið þátt i svona leik, hvorki með félagsliði né landsliði. Vonandi þarf ég ekki að taka þátt í fleiri svona leikjum.“ Sturla vildi meina að ákveðnum spurningum þyrfti að svara eftir svona frammistöðu „Menn þurfa bara að spyrja sig hvort að þeir séu klárir, bæði á æfingum og leikjum. Þessi leikur var bara löðrungur í andlitið.“
Olís-deild karla Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira