Viðskipti innlent

Óttast að það sé ekki vilji til að afnema höftin

Magnús Halldórsson skrifar
Vilmundur Jósefsson.
Vilmundur Jósefsson.
Vilmundur Jósefsson hyggst ekki gefa kost á sér sem formaður Samtaka atvinnulífsins á ársfundinum 6. mars næstkomandi. Hann segir afar brýnt að koma fjárfestingu af stað í atvinnulífinu og óttast að fjármagnshöft verði fyrir hendi hér á landi í mörg ár til viðbótar, ef ekki verði gripið til róttækra aðgerða.

Vilmundur hefur lengi verið í forsvari fyrir regnhlífarsamtök atvinnurekenda, eða allt frá árinu 1992, þegar hann tók fyrst sæti í stjórnum hagsmunasamta í atvinnulífinu. Þá var hann formaður Samtaka iðnaðarins á árunum 2000 til 2006, og hefur verið formaður Samtaka atvinnulífsins undanfarin fjögur ár.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, hefur þegar lýst því yfir að hann hyggist sækjast eftir því að verða formaður stjórnar Samtaka atvinnulífsins.

Vilmundur segist einfaldlega telja þetta hafa verið góðan tíma, en nú taki annar við keflinu.

„Ég tel einfaldlega þetta sé komið gott, ég er búinn að vera lengi í forsvari fyrir atvinnulífið í landinu, og finnst eðlilegt að hætta núna," segir Vilmundur.

Vilmundur segist líta svo á að dýrmætur tími hafi farið til spillis eftir hrunið, þar sem hægagangur hafi einkennt uppbyggingu í atvinnulífinu.

„Við gætum hafa gert miklu meira, og komið hlutum á meiri hreyfingu en raunin hefur verið. Við hjá SA höfum gagnrýnt stjórnvöld harðlega hvað þetta varðar, og það er mitt mat að tími hafi tapast frá hruni sem annars hefði verið dýrmætur í því að ná efnhagslífinu í gang. Við höfum of lengi hjakkað í sama farinu," segir Vilmundur.

Vilmundur segist óttast að það sé í reynd ekki neinn pólitískur vilji fyrir hendi, til þess að afnema fjármagnshöftin.

„Fjárfesting hefur verið alltof lítil, og það verður að örva hana með öllum ráðum. Annars skapast ekki nægilega mörg störf, og það er það sem við þurfum að gera, það er að skapa fleiri störf fyrir fólkið í landinu. Síðan óttast ég að það sé í reynd ekki fyrir hendi pólitískur vilji til þess að afnema fjármagnshöftin. Það þarf að stíga miklu ákveðnari skref en stigin hafa verið til þessa," segir Vilmundur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×