Erlent

Önnur hópnauðgun í Indlandi

MYND/AP
Lögreglan í Punjab-héraði í Indlandi hefur handtekið sex karlmenn í tengslum við hópnauðgun sem átti sér stað í rútu í gær.

Mennirnir rændu 29 ára gamalli konu og færðu á óþekktan stað þar sem þeir nauðguðu henni til skiptis. Ekki hafa borist fregnir af líðan konunnar en hún var skilin eftir í þorpi í grennd við Punjab.

Þetta er í annað skipti á stuttum tíma sem slík nauðgun á sér stað í Indlandi. í desember var ráðist á 23 ára gamla konu í höfuðborginni Delí og henni nauðgað af nokkrum mönnum. Hún lést af sárum sínum.

Málið vakti heimsathygli og hrundi af stað bylgju mótmæla í Indlandi þar sem konur hafa lengi vel mátt þola kynferðisofbeldi og sinnuleysi stjórnvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×