Handbolti

Svíar lágu gegn Þjóðverjum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þjóðverjar urðu heimsmeistarar á heimavelli árið 2007.
Þjóðverjar urðu heimsmeistarar á heimavelli árið 2007. Nordicphotos/Getty
Þjóðverjar unnu sex marka sigur á Svíum í vináttuleik karlalandsliða þjóðanna í handbolta í Vaxjö í Svíþjóð í kvöld.

Staðan í hálfleik var 10-10 en gestirnir frá Þýskalandi, sem undirbúa sig af kappi fyrir HM á Spáni, sigu fram úr í síðari hálfleik og unnu sex marka sigur 26-20.

Markvörðurinn Silvio Heinevetter var besti maður Þjóðverja í leiknum að því er miðillinn Handball-World greinir frá. Rúmlega 4500 áhorfendur fylgdust með leiknum í kvöld.

Svíar, sem unni til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í London í sumar, þurfa ekki að hafa of miklar áhyggjur af úrslitunum enda ekki á meðal þátttakenda á Spáni.

Íslendingar mæta Svíum í æfingaleik í Svíþjóð 8. janúar. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×