Viðskipti innlent

FME gerir margvíslegar athugasemdir við starfsemi Stafa

Magnús Halldórsson skrifar
Fjármálaeftirlitið (FME) gerir margvíslegar athugasemdir við starfsemi Stafa lífeyrissjóðs, samkvæmt niðurstöðu athuganar eftirlitsins á starfsháttum sjóðsins, sem birt var á vef eftirlitsins í dag. Meðal annars eru gerðar „alvarlegar athugasemdir" við fjárfestingar sjóðsins hvernig fjárfestingar eru flokkaðar í óskráð og skráð verðbréf.

þá gerir FME „alvarlega athugasemd við að farið hafi verið út fyrir heimildir laga hvað varðar fjárfestingar í sjóðum sem ekki lúta opinberu eftirliti, sbr. 4. ml. 4. mgr. 36. gr. Þá telur Fjármálaeftirlitið það ámælisvert að sjóðurinn hafi ekki verið meðvitaður um stöðu sína í þessum eignaflokki," eins og orðrétt segir í tilkynningu FME.

FME framkvæmdi athugun á þáttum í starfsemi Stafa lífeyrissjóðs með vísan til laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

Athugunin fór fram með gagnaöflun auk funda á starfsstöð lífeyrissjóðsins hinn 20. janúar 2012. Í kjölfar athugunarinnar ritaði Fjármálaeftirlitið skýrslu þar sem fram komu athugasemdir og ábendingar eftirlitsins og kröfur um úrbætur sem skal vera lokið innan tilgreindra tímamarka.

„Drög að skýrslunni voru afhent lífeyrissjóðnum hinn 5. september 2012 og honum gefið tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og frekari upplýsingum á framfæri. Í endanlegri útgáfu skýrslunnar, dags. 3. desember 2012, var tekið tillit til athugasemda lífeyrissjóðsins eftir því sem tilefni þótti til," segir í tilkynningu FME.

Framkvæmdastjóri Stafa, Ólafur Sigurðsson, sendi frá sér fréttatilkynningu nú fyrir skömmu, fyrir hönd stjórnar, þar sem sjóðurinn svarar gagnrýni FME. Tekið er fram í tilkynningunni að sjóðurinn hafi þegar brugðist við margvíslegum athugasemdum sjóðsins, og hafi meðal sett á fót sérstakt eftirlit innan hans.

Sjá má athugasemdir FME, vegna starfsemi Stafa, hérHér má svo sjá athugasemdir frá Stöfum, vegna athugunar FME.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×