Lífið

Bregður á leik á nærbuxunum

Ofurfyrirsætan Behati Prinsloo birti ansi skemmtilega mynd af unnusta sínum, söngvaranum Adam Levine, á Instagram í vikunni.

Á myndinni sést Adam bregða á leik og er aðeins klæddur í nærbuxur. Svo virðist sem myndin sé tekin baksviðs á tónleikum með hljómsveit hans Maroon 5.

Brúðkaup í vændum.
“Klámmyndir frá áttunda áratugnum voru að hringja. Þær vilja stemninguna sína aftur,” skrifar Behati við myndina en Adam bað hennar um miðjan júlí á þessu ári.

Hress.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×