Lára Rúnars flúði í land vegna sjóveiki Friðrika Benónýsdóttir skrifar 5. júlí 2013 10:00 Fjölskyldan fagnar því að hafa fast land undir fótum á Borgarfirði eystri í gær.
Áhöfnin á Húna lagði upp í hringferðina um landið í fyrradag. Siglingin frá Akureyri til Húsavíkur gekk svo nærri einu konunni í bandinu að hún neitaði að fara aftur um borð og fór landleiðina til Borgarfjarðar eystri. "Það gengur ekki alveg eftir áætlun. Við þurftum að grípa til annarra ráðstafana út af sjóveiki,“ segir Lára, spurð hvernig lífið um borð í Húna gangi. „Ég ber það fyrir mig að fjögurra ára dóttir mín, sem er með í för, hafi orðið sjóveik á leiðinni frá Akureyri til Húsavíkur, en sannleikurinn er sá að ég var alveg eins sjóveik og hún.“ Lára, maður hennar Arnar Þór, sem er trommari í bandinu, og dóttir þeirra fóru því landleiðina til Borgarfjarðar eystri eftir tónleikana á Húsavík, enda sautján tíma sigling ekki freistandi fyrir sjóveika. „Við sögðum bara pass, takk fyrir kærlega,“ segir Lára. Lára er af sjómannaætt frá Ísafirði, bæði afi hennar og langafi voru skipstjórar, og segist hún skammast sín pínulítið fyrir sjóveikina. „Ég hef sjómennskuna í blóðinu og vonandi tekur ekki nema tvo, þrjá daga að venjast þessu lífi. Ég mun verða með í siglingunni frá Höfn til Vestmannaeyja, enda verður dóttirin þá komin til afa síns og ömmu, og vonandi gengur það betur. Ég verð bara að harka af mér.“ Þótt hljómsveitin kalli sig Áhöfnina á Húna er það ekki alveg réttnefni. Á bátnum er átta manna áhöfn auk Fjólu sem sér um matseldina ofan í hópinn um borð. „Svo eru þrír kvikmyndatökumenn með í för, þannig að þetta er heljarinnar hópur,“ segir Lára. Fyrstu tónleikarnir voru á Húsavík í fyrrakvöld og gengu alveg frábærlega vel að sögn Láru. „Ég held að flestir Húsvíkingar hafi mætt og þetta tókst eins vel og hægt var að hugsa sér.“ Í kvöld verður bein útsending frá tónleikunum á Reyðarfirði og síðan heldur Áhöfnin áfram hringinn um landið og endar á Akureyri þann 20. júlí.
Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Sjá meira