Gáfu Flateyringum folfvöll Sara McMahon skrifar 5. júlí 2013 09:35 Óli tröllabarn, Geiri glæsimenni og Siggi Bahama við störf sín. Mynd/spessi „
Íbúar Flateyrar eru svo ofsalega vinalegir og tóku okkur opnum örmum og okkur langaði að gefa eitthvað til baka,“ segir Sigurður Magnússon, betur þekktur sem Siggi Bahama. Hann og tveir vinir hans smíðuðu folfvöll og gáfu Flateyringum að gjöf. Siggi dvaldi fyrir vestan við tökur á kvikmyndinni París norðursins og smíðaði folfvöllinn ásamt tveimur öðrum úr tökuliðinu. „Við vorum þrír í þessu: ég, Óli tröllabarn og Geiri glæsimenni. Við smíðuðum þetta úr rusli sem við fundum á haugunum á Ísafirði þannig að þetta kostaði ekki mikið, framleiðendur myndarinnar lögðu svo út fyrir því sem upp á vantaði.“ Folfvöllurinn stendur við snjóflóðavarnagarð bæjarins og var opnaður við hátíðlega athöfn daginn áður en tökuliðið hélt til síns heima. „Það var bæjarhátíð daginn áður en við fórum og þá var klippt á borðann og svæðið opnað. Mér skilst að einn íbúanna ætli svo að taka sig til og leigja út diska til ferðamanna.“ Siggi hóf sjálfur að spila íþróttina stuttu eftir að hann flutti í íbúð við Klambratún, en þar er vinsæll folfvöllur. Hann segir íþróttina stórskemmtilega og mjög ávanabindandi. „Þetta er rosalega skemmtileg íþrótt og reglurnar eru alveg eins og í golfi, nema í folfi er maður með frisbí í stað kylfu. Sá sem klárar hringinn á sem fæstum köstum sigrar,“ segir hann að lokum.
Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Fleiri fréttir Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið