Bíða enn eftir gögnum frá Eir 6. mars 2013 20:43
Nokkrir fyrrverandi íbúar á hjúkrunarheimilinu Eir, sem enn eiga eftir að fá greiddar um samtals tvöhundruð milljónir fyrir búseturétt, eru ósáttir við sáttarleið stjórnarinnar. Lögmaður segir gjaldþrot ekki endilega verri kostinn en mjög illa hefur gengið að fá gögn frá heimilinu til að varpa ljósi á stöðuna. Íbúum á Eir var í síðustu viku boðið að fá langtímaskuldabréf í stað staðgreiðslu þegar íbúðum er skilað en um ellefu manna hópur sem þegar hefur skilað lyklum sínum en ekki fengið búsetturéttinn greiddan hefur einnig verið boðið upp á slíkt fyrirkomulag. Sigríður Kristinsdóttir, sem að gætir hagsmuna tveggja kröfuhafa, segir hljóðið í skjólstæðingum sínum þungt en kröfurnar eru frá nokkur hundruð þúsundum upp í tugi milljóna. „Í fyrsta lagi telja menn að það þurfi að liggja fyrir frekari upplýsingar, meðal annars hver verður greiðandi og staðan hans er. Í öðru lagi er allt óvíst um verðmæti þessa skuldabréfs. Við höfum óskað eftir gögnum frá Eir og höfum ítrekað gert það en gengið mjög erfiðlega að fá gögnin til þess að skýra stöðuna," segir Sigríður. Sigríður segir hópinn hafa setið hitafund á Eir í gær þar sem samningaleiðin var meðal annars rædd en fram hefur komið í fréttum að allir íbúar þurfi að samþykkja fyrirkomulagið annars stefni heimilið í nauðasamninga eða gjaldþrot. Þetta hafi mjög slæm áhrif á skjólstæðinga sína enda sé um að ræða kröfur sem greiða hafi átt síðastliðið sumar. Fréttina í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Fréttin hefst þegar rétt rúmar ellefu mínútur eru liðnar af myndbandinu.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Erlent Fleiri fréttir Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Sjá meira