Zeitz óánægður með framkomu Kiel Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. júlí 2013 15:15 Nordic Photso / Getty Images
Christian Zeitz, sem samdi nýlega við ungverska liðið Veszprem, segir tilboð sem hann hafi fengið frá forráðamönnum Kiel hafa verið hlægilegt. Zeitz er 32 ára gamall og hefur verið á mála hjá Kiel síðan 2003. Samningur hans við félagið rennur út eftir næsta tímabil og því mun hann ekki flytja sig yfir til Ungverjalands fyrr en á næsta ári. En miðað við yfirlýsingar hans í opnu bréfi sem hann sendi stuðningsmönnum Kiel er hann ekki ánægður með þá meðhöndlun sem hann hafi fengið hjá forráðamönnum liðsins. „Ákvörðun mín um að fara er eðlilegt framhald á því sem verið hefur í gangi síðustu mánuði,“ sagði Zeitz og bætti við að tilboðið sem hann hafði í höndunum frá Kiel hafi verið svo lélegt að það bæri ekki að túlka á annan hátt en að hann ætti vinsamlegast að fara eitthvert annað. „Ég er á þeim aldri þar sem ég þarf að hugsa um framtíð mína og því hafnaði ég tilboði Kiel. Ég hefði þó gjarnan viljað vera áfram hér og spila hjá Kiel til loka ferilsins.“ Hann vonast til þess að fá sanngjarna meðhöndlun á síðasta ári samningstímans síns hjá Kiel og að tekið verði á málunum á fagmannlegan máta. Forráðamenn Kiel sendu frá sér tilkynningu til að svara ásökunum Zeitz. Þar er þeim öllum vísað til föðurhúsanna. „Við látum ekki draga okkur ekki í samningsdeilu við leikmenn. Allir leikmenn fá sanngjarna meðhöndlun,“ segir í yfirlýsingunni meðal annars.
Handbolti Mest lesið De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira