HSÍ aðstoðaði við að koma silfurpeningnum úr sölu Jakob Bjarnar skrifar 16. október 2013 12:59
Einn þeirra fjórtán af þeim sem fengu silfurpening eftir að íslenska handknattleikslandsliðið lenti í öðru sæti á Ólympíuleikunum í Kína 2008, lenti í slíkum kröggum að hann setti peninginn í sölu. Í samtali við hádegisfréttir Bylgjunnar kom fram að peningurinn væri kominn úr þeirri sölumeðferð sem hann var í. Peningurinnn er ekki lengur til sölu en er þó ekki í höndum HSÍ. Aðspurður um aðkomu samtakanna að málinu sagði Guðmundur B. Ólafsson formaður HSÍ: „Aðkoma HSÍ felst í því að það eru ákveðnar ástæður sem ollu því að þessi peningur fór í umferð og við kynntum okkur það mál. Í ljósi þess ákváðum við að það mál yrði leyst að hluta til. Það tókst og þar af leiðandi var peningurinn tekinn úr umferð.“ Guðmundur sagði þessa silfurpeninga vera eign íþróttamannanna. „Í ljósi aðdraganda þess hvernig þessi peningur komst í umferð ákváðum við að aðstoða við að koma honum úr umferð. Við teljum að hann hafi sögulegt gildi fyrir handbolta- og íþróttasöguna og þess vegna sé það mikilvægt að hann haldist innan þess hóp sem vann fyrir honum eða HSÍ. Þess vegna skiptum við okkur af þessu.“ Aðspurður hvort HSÍ myndi bregðast við því ef annar peningur kæmi til sölu segir Guðmundur: „Nei, ekki ef það er einhver vilji hjá mönnum að selja silfrið sitt, þá munum við ekkert skipta okkur frekar að því. Það yrði mjög leiðinlegt að vísu.“ Kemur til greina að varpa frekari ljósi á málið: „Við teljum að þetta sé algerlega ljóst eins og þetta liggur fyrir. Rót þess hvernig þessi peningur fór í umferð, við erum búnir að loka því máli. Við teljum málið alveg skýrt. Að finna hvaða einstaklingar eiga í hlut er algert aukaatriði.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira